Dagsloka­gengi Play var 0,94 krónur á hlut eftir tæp­lega 3% hækkun í ör­við­skiptum í dag. Líkt og kunnugt er gerðu tveir stærstu hlut­hafar félagsins yfir­töku­til­boð í allt hluta­fé á genginu 1 króna á hlut.

Hluta­bréfa­verð Ocu­lis hækkaði um tæp 2% í 22 milljón króna við­skiptum og lokaði í 2.420 krónum á hlut.

Mesta veltan var með bréf Ís­lands­banka en gengi bankans stóð í stað í 117 krónum á hlut í 415 milljón króna við­skiptum.

Gengi Al­vot­ech leiddi lækkanir en gengi félagsins fór niður um 3% í 121 milljón króna við­skiptum. Dagsloka­gengi Al­vot­ech var 1.125 krónur.

Hluta­bréfa­verð Reita fór niður um 2,6% og lokaði í 111 krónum á hlut.

Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,19% og lokaði í 2.607,01 stigum. Heildar­velta var 1,6 milljarðar.