Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,3% í 2,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Mesta veltan, eða yfir hálfur milljarður króna, var með hlutabréf JBT Marels sem féllu um 0,3% í verði.

Mesta breytingin var á hlutabréfaverði Síldarvinnslunnar sem lækkaði um 3,4% í yfir 300 milljóna króna veltu og stendur nú í 70,5 krónum á hlut. Gengi Síldarvinnslunnar hefur nú fallið um 23,5% í ár og 17,5% frá því að ríkisstjórnin kynnti fyrst þann 25. mars sl. áform um hækkun veiðigjald.

Þá féll hlutabréfaverð Alvotech um 2,2% í 190 milljóna króna veltu og stendur gengi líftæknilyfjafyrirtækisins nú í 1.110 krónum á hlut.

Hagar og Festi hækka eftir tilkynningar um endurkaup

Smásölufyrirtækin Hagar og Festi hækkuðu mest af félögum Kauphallarinnar. Félögin tilkynntu bæði á föstudaginn um endurkaup.

Stjórn Festi tók ákvörðun um að hefja endurkaupaáætlun þar sem áætlað er að kaupa allt að 0,8% hlut í félaginu fyrir að hámarki 800 milljónir króna á seinni hluta ársins.

Hagar tilkynntu í morgun um niðurstöðu endurkaupa á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi, sem boðuð voru á föstudaginn. Hagar tóku tilboðum fyrir 1.000.000 hluti á genginu 103, þ.e. samtals fyrir 103 milljónir króna.