Hlutabréfaverð Tesla féll um 14% í gær eftir að Elon Musk, forstjóri rafbílaframleiðandans, og Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndu hvorn annan harðlega opinberlega. Gengið hefur rétt aðeins úr kútnum í dag.

Markaðsvirði Tesla féll um 152 milljarða dala í gær, sem er mesta lækkun á markaðsvirði félagsins á einum degi í sögunni. Verðmat félagsins fór þar með undir eitt þúsund milljarða dala og nemur í dag 892 milljörðum dala.

Lækkun fylgdi í kjölfar þess að Trump hótaði að draga úr niðurgreiðslum og slíta samningum ríkisins við félög á vegum Musk. Sá síðarnefndi gaf til kynna að kæra ætti Trump til embættismissis og sagði jafnframt að Bandaríkjaforsetinn væri í Epstein-skjölunum.

Hlutabréfaverð Tesla hefur hækkað um 5% í viðskiptum fyrir opnun markaða í dag í kjölfar fregna um að verið sé að skipuleggja símafund milli Trump og Musk, að því er segir í frétt Reuters.