Hlutabréf kínverska fyrirtækisins Xiaomi hækkuðu um 8% í dag í 61,45 Hong Kong dali, eða 7,83 dali, og samkvæmt FT hefur gengi félagsins aldrei verið hærra. Hækkunin kom eftir að Xiaomi tilkynnti nýjasta sportbíl fyrirtækisins, YU7 í gær.
Xiaomi, sem er með höfuðstöðvar í Peking, hóf starfsemi sem snjallsímaframleiðandi en hefur síðan þá farið út í framleiðslu á annars konar raftækjum og einnig rafbílum.
Hinn umræddi rafbíll kostar um 35 þúsund dali og verður settur í beina samkeppni við Model Y frá Tesla. Staða Xiaomi hefur hrist verulega upp á kínverska markaðnum og ógnað stöðu BYD, Tesla og annarra bílaframleiðenda þar í landi.
Jeff Chung, sérfræðingur hjá Citi, segir að Tesla, sem situr nú í fimmta sæti á kínverska rafbílamarkaðnum, gæti neyðst til að lækka verð sín enn frekar til að bregðast við kynningu bílsins.
Kínverska ráðgjafarfyrirtækið AutoXing segist búast við að 100 þúsund eintök af YU7 seljist á fyrsta sólarhringnum og bendir á að fyrsti bíll Xiaomi, SU7, seldist í 50 þúsund eintökum á aðeins 27 mínútum.