Sjóður í stýringu hjá Stefni, sem er að fullu í eigu íslenskra lífeyrissjóða, hefur gengið frá kaupum á Heimstaden á Íslandi sem er með um 1.600 íbúðir í langtímaleigu hér á landi. Seljandinn er norska fjárfestingafélagið Fredensborg AS sem er móðurfélag Heimstaden AB. Kaupin eru með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Upphaflega var tilkynnt um fyrirhuguð kaup sjóðsins, sem er í stýringu Stefnis, í október sl. en samkomulagið var með fyrirvörum, meðal annars um fjármögnun sem hefur nú verið aflétt, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Málið er nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.
60 íbúðir teknar úr sölu og auglýstar til leigu
Fram kemur að með þessum áfanga er uppsögn á leigusamningum um 250 heimila dregin til baka en Heimstaden hafði tilkynnt áform um að selja eignir sínar á almennum markaði og draga sig úr leigustarfsemi hér á landi. Þá verða auk þess yfir 60 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu teknar úr söluferli og auglýstar lausar til leigu á næstu vikum.
„Langtímaáform nýrra eigenda Heimstaden er að skapa þjónustudrifið leigufélag sem verður nýtt uppbyggingarafl á íbúðamarkaði og þannig styðja við markmið stjórnvalda um aukið aðgengi að húsnæði. Félagið hyggst fjármagna uppbyggingu nýrra íbúða til útleigu með það að markmiði að tvöfalda stærð félagsins á næstu árum.“
Stefnir segir að frumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur fjármálaráðherra um fyrirhugaða lagabreytingu á fjárfestingum lífeyrissjóða á íbúðamarkaði hafi haft „afgerandi áhrif“ á að náðst hafi þessum áfanga.
Egill stýrir félaginu áfram
Í tilkynningu Stefnis segir að undanfarið hafi mikil óvissa ríkt meðal starfsfólks og leigjenda um framtíð félagsins. Með kaupunum hafi framtíð leigufélagsins verið tryggð auk þess sem hætt hefur verið við eignasölu.
Þá mun Egill Lúðvíksson halda áfram sem forstjóri félagsins og engar breytingar verða gagnvart starfsfólki Heimstaden. Egill tók við stöðunni af Gauta Reynissyni síðasta sumar.
Ráðgjafi Fredensborg AS í viðskiptunum eru Arctica Finance og LEX lögmannsstofa, en ráðgjafar kaupenda eru BBA/Fjeldco og Logos.