Gísli Kr. og fjárfestingafélag hans, Bright Ventures, hafa bæst við eigendahóp sprotafyrirtækisins Snjallgagna. Aðrir bakhjarlar Snjallgagna í dag eru Tennin, MGMT Ventures, Founders Ventures og Icelandic Venture Studio. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Snjallgögn er tíu manna hugbúnaðarhús með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið þróar lausnir sem gera vinnustöðum mögulegt að hagnýta gervigreind og gagnavísindi til að efla sölu og þjónustu ásamt því að bæta daglegan rekstur.

Lykilvara Snjallgagna er gervigreindarkerfið Context Suite, sem er safn hugbúnaðarlausna og inniheldur meðal annars þjónustugreind, eftirspurnargreind og snjallmennið Mími.

Starfaði hjá atNorth og Greenqloud

Gísli Kr. hefur frá árinu 2010 setið í framkvæmdastjórn vaxta- og sprotafyrirtækjanna atNorth, áður Advania Data Centers, sem byggir og rekur gagnaver á Norðurlöndunum, og skýjatæknifélaginu Greenqloud. Bæði félögin voru seld til erlendra aðila á síðustu árum.

Gísli hefur lengst haft sölu og markaðsmál á sinni könnu, ásamt vöru- og viðskiptaþróun, en einnig borið ábyrgð á fjármálum og rekstri. Síðastliðin 15 ár hefur Gísli einnig unnið sem ráðgjafi varðandi tæknilega innviði, viðskiptaþróun og markaðsmál ásamt því að sinna stjórnarsetu í ýmsum félagasamtökum.

„Það er mér hjartans mál að styðja við íslenska nýsköpun og gleðilegt að fá tækifæri til að taka þátt í jafn spennandi verkefni og Snjallgögnum. Gervigreindarlausnir Snjallgagna geta bylt rekstri fyrirtækja, ekki bara til framtíðar heldur strax í dag. Stefán og kollegar hafa smíðað öflugt rekstrartól sem fyrirtæki og stofnanir, óháð stærð og staðsetningu, geta nýtt til að tryggja sína samkeppnishæfni og rekstrarhagkvæmni. Ég hlakka til að taka þátt í þessari verðugu vegferð,” segir Gísli Kr.

„Það skiptir okkur hjá Snjallgögnum lykilmáli að fjárfestar í fyrirtækinu komi með verðmæta sérþekkingu að borðinu; þekkingu sem annað hvort þarf að styrkja hjá okkur eða byggja upp frá grunni. Gísli Kr. er einn af fáum íslenskum sérfræðingum á sviði sölu- og markaðsmála í upplýsingatækni, sem hefur jafnframt mikla reynslu af sölu til erlendra stórfyrirtækja,” segir Stefán Baxter, forstjóri Snjallgagna og einn stofnenda fyrirtækisins.