Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða á árinu 2024, þ.e. frá ágúst til desember, nema 1,725 milljónum króna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Alþingi samþykkti í júní sl. breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga þar sem Jöfnunarsjóði var falið það hlutverk að úthluta framlagi til sveitarfélaga sem bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum.

Framlagið skiptist hlutfallslega á milli sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar skólaárið á undan.

„Miðað er við að framlagið greiðist mánaðarlega frá 1. ágúst 2024 til loka árs 2027 að undanskildum júlímánuði ár hvert, auk þess sem úthlutun framlagsins í ágústmánuði tekur mið af því að skólaárið hefst um miðjan mánuðinn,“ segir jafnframt á vef Innviðaráðuneytisins.

Áætlað er að árlegt framlag úr ríkissjóði fyrir heilt skólaár verði í kringum 3.750 milljónir króna.

Í tilkynningu innviðaráðuneytisins segir að forsenda þess að til úthlutunar komi sé að sveitarfélag bjóði nemendum upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir en útfærslan á því með hvaða hætti boðið er upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir er háð ákvörðun hvers sveitarfélags.

Ráðherra mun skipa starfshóp til leggja mat á nýtingu og áhrif framlags gjaldfrjálsra skólamáltíða. Starfshópurinn verður skipaður fulltrúa innviðaráðuneytisins, sem jafnframt verður formaður, fulltrúa mennta- og barnamálaráðherra og tveimur fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og er gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en í júní 2026.