Allar líkur eru á að Blöndulón og Hálslón fyllist í sumar, eins og undanfarin sumur, að því er segir í tilkynningu frá Landsvirkjun. Þá teljast núna góðar líkur á að Þórisvatn fyllist, en það gerðist síðast haustið 2019.

Þórisvatn stendur nú þegar 2 metrum hærra en hæsta staða var haustið 2024.

„Því er útlitið þannig að ekki þurfi að grípa til takmarkana á afhendingu raforku vegna vatnsskorts næsta vetur,“ segir í tilkynningunni.

Landsvirkjun segir innrennsli á vatnasviðum Landsvirkjunar það sem af er þessu ári hafa verið hagfellt og vorflóðin í maí skilað sér vel inn í lónin. Bent er á að Blöndulón fór á yfirfall tímabundið í lok maí. Hægt hefur á vatnssöfnun nú í júní, en í júlí eykst afrennsli af jöklum sem skilar sínu, sérstaklega í Hálslón.