Íslenska fyrirtækið Godo (Flekaskil ehf.), sem sérhæfir sig í tæknilausnum í ferðaþjónustu, hefur sameinast sænska ferðatæknifyrirtækinu Visit Group. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.
Godo segir samstarfið marka nýjan kafla í 12 ára sögu félagsins, styrkja innviði þess ásamt því að auka vöruúrval og sameina það við alþjóðlegt vistkerfi Visit Group.
Nýsköpunarfyrirtækið Godo hefur starfað á sviði ferðatækni frá árinu 2013 og er í dag með kjarnastarfsemi í þremur löndum; Íslandi, Serbíu og Norður-Makedóníu. Félagið keypti í fyrra rekstrareininguna Origo Ferðalausnir, sem innihéldu ferðalausnirnar Booking Factory, Reserva og Caren, af Origo.
Visit Group, sem var stofnað árið 1999, er í meirihlutaeigu bandaríska fjárfestingafélagsins PSG Equity sem fjárfesti í sænska félaginu fyrir meira en 100 milljónir evra, eða yfir 14 milljarða íslenskra króna í fyrra.
Godo segir í tilkynningu að Visit Group hafi verið í fararbroddi við að endurskilgreina hvernig gesta- og upplifunarþjónusta er framkvæmd hjá ferðaþjónustufyrirtækjum. Sem leiðandi fyrirtæki á Norðurlöndum fyrir tæknilausnir í ferðaþjónustu, aðstoði Visit Group hótel/gististaði, afþreyingarfyrirtæki, skemmtigarða, orlofsstaði, ferjufyrirtæki og fleiri við að straumlínulaga rekstur, auka tekjur og tengja saman áfangastaði.
„Sterk staða Visit Group og hæfni á þessu sviði styrkir GODO á íslenskum markaði og sameiginlegt áhersluatriði beggja fyrirtækja er stöðug nýsköpun sem bætir alla gesta upplifun viðskiptavina.“
„Visit Group deilir okkar viðskiptavinamiðuðu sýn og vörur okkar styðja frábærlega við vörumengi þeirra. Þessi samruni mun bæði í senn hraða vexti okkar á Norðurlöndum en um leið dýpka þjónustu- og vöruframboð til okkar núverandi viðskiptavina,“ segir Sveinn Pálsson, annar stofnenda Godo.
„Sameiginlegt markmið okkar er að lyfta rekstrarumhverfi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja upp á hærra plan með aukinni tekjumyndun, bættri rekstrarhagkvæmni og síðast en ekki síst enn betri gestaupplifun.“
Sverrir Steinn Sverrisson, stjórnarformaður Godo, segir sameininguna vera gæðastimpil á íslenska ferðaþjónustu.
„Þau deila okkar sýn, gildum og skuldbindingu við að knýja fram vöxt og nýsköpun fyrir viðskiptavini okkar. Saman munum við styrkja lausnirnar okkar, stækka inn á nýja markaði og halda áfram að bjóða upp á hágæða lausnir fyrir iðnaðinn,“ er haft eftir Richard Wiegmann, forstjóra Visit Group.
Godo velti 944 milljónum króna árið 2023, samanborið við 590 milljónir árið áður, og hagnaður var um 74 milljónir króna samkvæmt síðasta birta ársreikningi Flekaskila. Eignir félagsins námu 476 milljónum króna í árslok 2023 og eigið fé var um 343 milljónir króna.
Sveinn Jakob Pálsson og Sverrir Steinn Sverrisson voru stærstu hluthafar Godo með 28% hlut hvor. Þar á eftir kom Skyggnir með 22% hlut.
Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins eignast stærstu hluthafar Flekaskila hlut í samstæðu Visit Group. Skyggnir Eignarhaldsfélag, móðurfélag Origo, selur hins vegar eignarhlut sinn í félaginu.
Fimm stærstu hluthafar Godo í árslok 2023
Eignarhlutur |
28,0% |
28,0% |
22,0% |
4,8% |
4,4% |