Hitatækni ehf., sem sér­hæfir sig í inn­flutningi og hönnun búnaðar fyrir loft­ræsti­kerfi, lauk rekstrarárinu 2024 með myndar­legum hagnaði.

Sam­kvæmt ný­birtum árs­reikningi nam hagnaður félagsins á árinu alls 222,6 milljónum króna. Stjórn leggur til að greiddur verði arður að upp­hæð 180 milljónir króna á árinu 2025.

Árið 2021 sam­einuðust fjögur fyrir­tæki, Hitatækni, Varmi, Raf­loft og Proventa, undir nafni Hitatækni.

Heildar­eignir Hitatækni námu rúm­lega 439,8 milljónum króna í árs­lok og eigið fé stóð í 306 milljónum.

Eigin­fjár­hlut­fall félagsins er 70%, sem endur­speglar sterka fjár­hags­stöðu. Félagið, sem hefur að­setur í Kópa­vogi, hélt úti 23 starfsmönnum að meðaltali á síðasta ári.

Á árinu 2024 stækkaði félagið við sig með kaupum á öllum hluta­bréfum í Loft­ræsti­hreinsun ehf., sem sér­hæfir sig í hreinsun loft­ræsti­kerfa.

Sam­kvæmt skýrslu stjórnar hefur rekstur dóttur­félagsins gengið í samræmi við væntingar og er mark­mið kaupa að auka þjónustu­fram­boð Hitatækni ehf. og efla sam­keppnis­stöðu á sviði loft­ræstitækni.

Hlut­hafar félagsins voru sex talsins í lok árs.

Stærsti hlut­hafinn, Celsíus­hitastýring ehf., átti 90,81% hlut en aðrir hlut­hafar eru Húsvist ehf. (4,46%), Páll Gunn­laugs­son (2,86%), Guð­mundur Gunnars­son (1,34%), Borgþór Hjör­vars­son og Úlfar Óli Sævars­son (hvor um sig með 0,26%).

Jón Þór Gunnars­son og Rögn­valdur Guð­munds­son eiga hvor um sig 33,3% hlut í Celsíus­hitastýring.