Eignarhaldsfélagið Var hagnaðist um 1.559 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 143 milljóna króna hagnað árið áður.

Félagið seldi á árinu 34,1% eignarhluti í þremur auglýsingafyrirtækjum: Billboard ehf., BBI ehf. og Dengsa ehf. Í staðinn fjárfesti Var að mestu í öðrum eignarhlutum og verðbréfum ásamt því að veita lán í önnur verkefni, að því er kemur fram í skýrslu stjórnar. Þannig nam verðbréfaeign félagsins 816 milljónum króna í lok árs 2024 en hún var engin árið áður.

Í janúar í fyrra var tilkynnt að Síminn hefði undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í BBI, Dengsa og Billboard. Heildarvirði fyrirtækjanna þriggja samkvæmt kaupsamningi nam 5.150 milljónum króna.

Endanlegt kaupverð, sem Síminn greiddi í lok mars samkvæmt kauphallartilkynningu, nam 3.714 milljónum króna í peningum ásamt því að seljendur fengu afhenta 101.153.146 hluti í Símanum.

Samkvæmt ársreikningi nam söluhagnaður 34,1% eignarhluta Var í félögunum þremur 1.351 milljón króna. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 allt að fjárhæð 800 milljónir króna.

Félögin Arctica Eignarhaldsfélag ehf., að stærstum hluta í eigu Bjarna Þórðar Bjarnasonar og Stefáns Þórs Bjarnasonar, Dalsárós ehf. í eigu Jóns Felix Sigurðssonar, Granat ehf., í eigu Guðríðar Maríu Jóhannesdóttur og Guðmundar Auðuns Auðunssonar, og Sunnunes ehf., í eigu Jóns Björnssonar forstjóra Veritas og Höllu Tómasdóttur forseta, eiga hvort sinn 25% hlutinn í Var.

Í samtali við Viðskiptablaðið fyrir um ári síðan árétti Halla að Jón Björnsson stýri Sunnunesi og fjárfestingum þess og að aðkoma hennar að rekstri félagsins sé engin.