Borgaryfirvöld Tulsa í Oklahoma eru nú að undirbúa 105 milljóna dala skaðabótagreiðslu vegna fjöldamorðanna í Tulsa sem framin voru árið 1921 í hverfinu Greenwood. Þar réðust hvítir borgarar á heimili svartra íbúa og lögðu hús þeirra og fyrirtæki í rúst.

Fjöldamorðin eru talin eitt versta dæmi um kynþáttaofbeldi í sögu Bandaríkjanna en allt að 300 manns voru myrt á meðan óeirðirnar stóðu yfir frá 31. maí til 1. júní 1921.

Borgarstjórinn Monroe Nichols, sem er jafnframt fyrsti svarti borgarstjóri Tulsa, hefur skipulagt greiðsluna og segir að fjármagnið muni renna til enduruppbyggingar samfélagsins og felur ekki í sér beinar greiðslur til afkomenda.

Fjármagnið kemur frá einkasjóði og felur meðal annars í sér 24 milljónir dala sem renna í húsnæðissjóð og 60 milljónir dala fyrir sjóð sem er tileinkaður varðveislu á menningu.

Lítið var rætt um fjöldamorðin í fleiri áratugi eftir að þau áttu sér stað. Atburðurinn var hins vegar settur í sviðsljósið árið 2020 þegar Donald Trump tilkynnti að hann myndi halda kosningafund í Tulsa þann 19. júní það ár en þann dag var einnig verið að minnast endaloka þrælahalds.

Forsagan

Við upphaf þriðja áratugar 20. aldar blómstraði efnahagur Tulsa vegna olíufunda. Kynþáttaaðskilnaðarstefna var hins vegar við lýði og bjuggu flestir svartir borgarbúar í Tulsa í Greenwood-hverfi borgarinnar.

Greenwood hafði stundum verið kallað svarta Wall Street þar sem flestir íbúarnir voru vel stæðir og þótti hverfið nokkurs konar táknmynd um efnahagsuppgang meðal blökkumanna.

Yfir 300 íbúar voru myrtir í fjöldamorðunum í Greenwood-hverfinu.
© Wikimedia Commons (Wikipedia)

Þann 30. maí gekk svartur unglingur að nafni Dick Rowland inn í byggingu til að nota salernið þar sem ekki var sérstakt salerni fyrir blökkumenn á vinnustað hans líkt og lög gerðu ráð fyrir.

Eftir að hann notaði lyftu byggingarinnar sakaði lyftuvörðurinn, hvít stúlka að nafni Sarah Page, Rowland um áreitni. Fjölmiðlar greindu í kjölfarið frá því að Rowland hefði beitt hana kynferðislegu ofbeldi og handtók lögreglan því strákinn daginn eftir.

„Nú er kominn tími til að taka næstu stóru skrefin í endurreisn“

Kvöldið 31. maí safnaðist múgur hvítra borgarabúa í kringum dómshúsið í Tulsa og krafðist þess að fá Rowland framseldan. Lögreglan, sem óttaðist að múgurinn myndi taka hann af lífi, neitaði. Seinna um kvöldið mætti hópur svartra borgarbúa á vettvang og kom síðan til átaka sem leiddi til þess að blökkumennirnir hörfuðu inn í Greenwood-hverfið.

Í kjölfarið gerðu hvítir borgarbúar árás á Greenwood-hverfið þar sem fólki var skotið á götum úti, verslanir voru rændar og kveikt var í húsum. Slökkviliðsmönnum sem komu á vettvang var hótað með byssum og þeim meinað að slökkva eldana. Í átökunum var sprengjum jafnframt varpað á hverfið úr flugvélum og er það talið fyrsta dæmi um loftárás á bandarískri grundu.

„Kynþáttafordómar í Tulsa hafa lengi verið svartur blettur á sögu borgarinnar og hafa verið faldir úr sögubókunum. Nú er kominn tími til að taka næstu stóru skrefin í endurreisn,“ sagði Monroe Nichols, borgarstjóri Tulsa um helgina.