Arion banki og Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að markmiði að styðja við frumkvöðla hér á landi. Samningurinn er sagður greiða fyrir nýjum lánum Arion til um 40 smárra og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi.

Ábyrgð frá EIF, sem er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins, gerir Arion banka kleift að lána allt að 15 milljarða króna til íslenskra fyrirtækja á hagstæðari kjörum en ella, að því er segir í fréttatilkynningu.

Stuðningi InvestEU er ætlað að styðja við þrjú ólík svið hér á landi: Fjárfestingar á sviði sjálfbærni, lánveitingar til nýsköpunar og stafvæðingar og menningu og skapandi greinar.

Hvað varðar síðastnefnda sviðið, menningu og skapandi greinar, þá er nánar tiltekið að samningurinn geri Arion kleift að auka aðgengi kvikmyndageirans hér á landi og tengdra greina að lánsfjármagni.

„Það er einstaklega ánægjulegt að endurvekja samstarf okkar við Evrópska fjárfestingasjóðinn. Samstarf okkar fyrir um átta árum var grunnurinn að stuðningi Arion við fjölmörg nýsköpunarverkefni t.a.m. á sviði fiskeldis, gagnavera, umhverfisvænna orkugjafa og húðvara. Nú nær samstarfið til enn fleiri sviða með áherslu á nýsköpun og stafvæðingu samfélagsins, menningu og skapandi greinar og sjálfbærni- og umhverfismál,” segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.

„Samstarf okkar og fjárfestingarsjóðsins er mikilvægt og auðveldar okkur að lána til verkefna á þessum sviðum. Það gerir okkur kleift að fjármagna verkefni sem eru komin skemmra á veg en ella og á hagstæðari kjörum, uppfylli þau skilyrði samningsins‏.“

Marjut Falkstedt, forstjóri Evrópska fjárfestingasjóðsins, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra nýsköpunarmála, og Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, við undirritun ábyrgðarsamningsins.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Annar samningurinn milli Arion og EIF

Ábyrgðarsamningurinn nú er annar ábyrgðarsamningurinn sem Arion banki og EIF gera. Sá fyrri var gerður árið 2016 og var hluti af InnovFin ábyrgðum til smárra og meðalstórra fyrirtækja. Áhersla var á stuðning við nýsköpun lítilla fyrirtækja í formi lánveitinga sem námu alls rúmlega 16 milljörðum króna.

„Þetta er annað verkefnið sem við komum að á Íslandi eftir að landið gerðist aðili að InvestEU áætluninni og við sjáum fram á að það muni hafa veruleg áhrif,“ sagði forstjóri EIF, Marjut Falkstedt, við undirritunina.

„Við unnum fyrst með Arion fyrir um áratug og það er ánægjulegt að geta nýtt áfram styrkleika bankans við að hrinda meginmarkmiði okkar í framkvæmd; að fjármagna þau smáu og meðalstóru fyrirtæki sem mest þurfa á fjármagni að halda. Við erum hluti af Evrópsku fjárfestingarbankasamstæðunni og standa loftlagsmál og sjálfbærni okkur – eins og Arion banka – nærri. Að auki, þá gleður það okkur að saman munum við beina sjónum okkar sérstaklega að íslenskum fyrirtækjum sem starfa á sviði nýsköpunar og stafvæðingar og menningar og skapandi lista.“

Nær til mengunarvarna, hreinna samgangna og fiskeldis

Á sviði sjálfbærni mun Arion banki horfa til fjármögnunar fjölbreyttra verkefna eins og sjálfbærs landbúnaðar, endurnýjanlegra orkugjafa, skilvirkrar orkunýtingar, hreinna samgangna og mengunarvarna og fráveitustýringar.

Þegar kemur að ábyrgðum á sviði stafvæðingar þá er gert ráð fyrir að fyrst og fremst verði um að ræða lánveitingar til fyrirtækja í örum vexti og nýsköpunar þegar kemur að ferla- og vöruþróun á sviði fiskveiða og -eldis, raunvísinda og verkfræði og líftækni.

„Í um þrjá áratugi hafa íslensk fyrirtæki, háskólar og rannsóknar- og menningarstofnanir tekið þátt í ýmsum áætlunum Evrópusambandsins. Þau hafa náð góðum árangri og eru mikils metin af alþjóðlegum samstarfsaðilum sínum. Ég hlakka til að fylgjast með hvernig ábyrgðarsamningur EIF og Arion banka sem undirritaður var hér í dag mun hjálpa smáum og meðalstórum á Íslandi sem starfa á sviði umhverfismála, tækni og menningar,“ sagði sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Clara Ganslandt.