Greiðslumiðlun Íslands (GMÍ), móðurfélag Motus, hagnaðist um 488 milljónir króna eftir skatta árið 2024 samanborið við 75 milljóna hagnað árið áður.
Stjórn félagsins lagði til að greiddur verði arður að fjárhæð 390 milljónir króna á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins.
225 milljónir í skaðabætur fyrir uppsögn á samningi
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 2.574 milljónum króna í fyrra sem samsvarar 380 milljóna króna hækkun frá fyrra ári, eða sem nemur 17% aukningu milli ára. Seld þjónusta jókst um 5,6% milli ára og nam 2,1 milljarði króna.
Í skýrslu stjórnar í ársreikningi GMÍ kemur fram að félag í samstæðunni fékk skaðabætur upp á 225 milljónir króna í fyrra vegna uppsagnar á samningi.
„Þróun í rekstri félagsins var í meginatriðum í samræmi við væntingar. Rekstur félagsins hefur gengið vel, það hefur verið rekið með hagnaði undanfarin ár og eiginfjárstaða þess hefur hækkað. Með aukinni tækniþróun hefur tekist að fækka starfsmönnum og lækka þannig rekstrarkostnað félagsins.“
Í fyrra var nýtt svið gagnalausna stofnað innan GMÍ til að styðja við gagnavegferð félagsins enn frekar. Félagið segir aukna stafrænivæðingu innheimtu hafa leitt til umtalsverðrar lækkunar rekstrarkostnaðar og haft góð áhrif á árangur innheimtuaðgerða.
Eignir GMÍ voru bókfærðar á 2,6 milljarða króna í árslok 2024 og eigið fé var um 1,5 milljarðar króna.
Undir samstæðu GMÍ eru vörumerkin Motus í innheimtu og kröfustýringu, Lögheimtan í löginnheimtu, Pacta í lögfræðiþjónustu og Pei í greiðslulausnum.
Hófu söluferli í lok síðasta árs
Eigendur GMÍ - Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. – hófu opið söluferli á félaginu í lok síðasta árs. hafa ákveðið að bjóða hluti sína til sölu í opnu söluferli.
Söluferlið er enn virkt, samkvæmt svari Landsbankans við fyrirspurn Viðskiptablaðsins.