Af­koma Søstrene Grene group hefur aldrei verið meiri er fjöl­skyldu­fyrir­tækið skilaði 213 milljóna danskra króna hagnaði í fyrra. Sam­svarar það um 4,3 milljörðum ís­lenskra króna á gengi dagsins.

Hjónin Inger Grene og Knud Cresten Vaup­ell Ol­sen stofnuðu fyrir­tækið árið 1973 en synir þeirra hjóna, Mikkel Grene og Cresten Grene, sjá um rekstur þess í dag.

Ekki er langt síðan þeir bræður á­kváðu að sækja fram af miklum krafti en sam­kvæmt Børsen er vöxturinn að skila sér í dag.

Í fyrra greindu þeir frá því að stefnan væri sett á að opna 100 nýjar verslanir á Bret­lands­eyjum fyrir árið 2030.

Tekjur sam­stæðunnar jukust um 22% á milli ára og námu 2,2 milljörðum danskra króna í fyrra eða sem nemur tæp­lega 45 milljörðum ís­lenskra króna.

Í af­komu­spá fé­lagsins fyrir árið í ár er búist við öðru me­t­ári en þar er þó tekið fram að hærri sjó­flutnings­verð séu að hafa nei­kvæð á­hrif á reksturinn.

Engu að síður er gert ráð fyrir því að tekjur vaxi um 15 til 25% milli ára og að af­koman verði ögn betri en í fyrra.

Tvær verslanir Søstrene Grene eru á Íslandi.