Fulltrúar samtaka vinnumarkaðarins, þ.e. Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands og BSRB, eru komnir á fund Geirs H. Haarde í Ráðherrabústaðnum.

Aðspurðir hvaða væntingar þeir gerðu til fundarins sögðust forkólfar vinnumarkaðarins enga hugmynd hafa. „Við erum jafn blönk og þið,“ sagði Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, við blaðamenn.

Fundurinn var að byrja en ekkert liggur fyrir um hversu langur hann verður.