Samhliða fyrstu útgáfu Viðskiptablaðsins árið 1994 var tækniheimurinn að springa út með alls kyns nýjungar sem myndu bæði auðvelda líf fólks um allan heim og gjörbreyta því hvernig við eigum samskipti hvert við annað.
Internetið fæddist þetta árið með innleiðingu veraldarvefsins (e. World Wide Web) og gat fólk tekið ljósmyndir með stafrænum myndavélum. Þegar kom að kvikmyndaáhorfi þurfti ekki lengur að spóla til baka þar sem fyrsti DVD-spilarinn kom á markað þetta ár.
Tækninýjungarnar voru þó ekki aðeins fyrir fullorðið fólk heldur fékk unga kynslóðin einnig að taka þátt í æðinu. Leikjatölvur voru vissulega til staðar en 1994 var árið sem fyrsta Play Station-leikjatölvan kom út.
Hér verður farið yfir nokkrar uppfinningar og nýjungar sem komu á markað árið sem Viðskiptablaðið kom fyrst út, allt frá byltingum í samskiptum til grillvara fyrrum hnefaleikakappa.
Nánar er fjallað um málið í Afmælisblaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.