Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að grípa verði til skerðinga á afhendingu raforku til þeirra frá 23. nóvember.

Á morgun, 24. október, taka jafnframt gildi áður boðaðar skerðingar hjá stórnotendum á suðvesturhluta landsins. Ekki er hægt að sjá fyrir hversu lengi þessar skerðingar munu standa, en þó má reikna með að það verði fram á næsta vor.

Þá hefur Landsvirkjun jafnframt hvatt stórnotendur til að draga úr álagi og skoða mögulega endursölu á rafmagni í þeim tilgangi en þetta eru sambærilegar aðgerðir og gripið var til í skerðingum fyrr á þessu ári.

„Ástæða þessa er, nú sem fyrr, slæm staða miðlunarlóna. Þórisvatn var langt frá því að fyllast í haust og niðurdráttur lónsins hefur verið mjög eindreginn. Sumarið var þurrt og kalt á hálendinu og bráðnun jökla lítil. Á sama tíma hefur staðið yfir stöðugur flutningur raforku frá Norður- og Austurlandi til suðurs í þeim tilgangi að jafna miðlunarstöðu milli landshluta,“ segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Þar segir jafnframt að vegna takmarkana í flutningskerfi Landsnets hafi ekki verið gripið til skerðinga fyrir norðan og austan fyrr en nú. „Rétt er að ítreka að aðeins er verið að skerða orku sem Landsvirkjun og viðskiptavinir hennar hafa samið um að sé skerðanleg þegar staða miðlunarlóna er lág.“