Í 30 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins er ítarlegur fréttaannáll sem spannar þrjátíu ár. Hér er farið yfir helstu fréttir frá 2005 til 2014.
2005
Landssíminn var seldur á árinu eftir sex ára meðgöngu. Um var að ræða stærstu einkavæðingu Íslandssögunnar því verðið sem Skipti ehf. greiddi fyrir símafyrirtækið nam 66,7 milljörðum króna. Að Skiptum stóðu Exista, Kaupþing, MP banki og þrír lífeyrissjóðir. Þá var Lánasjóður landbúnaðarins seldur Landsbankanum fyrir 2,7 milljarða króna.
***
Í mars keyptu Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson danska lággjaldaflugfélagið Sterling fyrir fimm milljarða króna. Félagið hafði vaxið mikið en ekki skilað hluthöfum góðri ávöxtun. Þetta var fyrsti leikurinn af mörgum þeirra félaga í fjárfestingum í Danmörku. Einnig átti Sterling eftir að skipta nokkrum sinnum um hendur á næstu misserum. Ekki þurfti að bíða lengur en fram í september eftir því að FL Group keypti danska fyrirtækið fyrir fimmtán milljarða króna. Stormasamt var á skrifstofum FL Group þetta árið því í júlí hættu allir stjórnarmenn félagsins nema Hannes Smárason vegna fimm milljarða króna fjárfestingar sem farið var í án vitneskju stjórnarinnar.

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Björgólfur Thor á Forbes-listann
Íslendingar eignuðust sinn fyrsta afreksmann í auðsöfnun á árinu þegar Björgólfur Thor Björgólfsson komst fyrstur Íslendinga á lista Forbes yfir efnuðustu menn heims. Á listanum var miðað við þá einstaklinga sem áttu meira en milljarð dala. Mat Viðskiptablaðið eign Björgólfs á ríflega 70 milljarða króna. Kaupþing endaði í 211. sæti á lista breska tímaritsins The Banker yfir stærstu banka heims og stökk upp um 248 sæti á einu ári.
***
Davíð Oddsson hætti í stjórnmálum og tók við embætti seðlabankastjóra, en hann hafði starfað innan stjórnmála í rúm 30 ár.
***
Lágvöruverðsverslanir hófu verðstríð og lækkuðu vöruverð um allt að 25%. Meðal annars hófu sumar verslanir að gefa mjólk eða selja hana á eina til tvær krónur.
***
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var kjörin Ungfrú heimur. Varð hún þar með þriðja íslenska stúlkan sem hlaut þennan titil.
***
Einn stærsti bankasamruni fram að þeim tíma varð þegar Landsbankinn og Straumur skiptu á milli sín Burðarási og Straumur-Burðarás varð til. Eigið fé Landsbankans jókst við þetta um 60% og eignaðist bankinn hlut Burðaráss í sænska fjármálafyrirtækinu Carnegie. Þórður Már Jóhannesson varð forstjóri Straums-Burðaráss, en átti ekki eftir að gegna því starfi lengur en fram á næsta ár þegar Friðrik Jóhannsson tók við.
2006
Í nóvember var greint frá því að Eggert Magnússon hefði gengið frá kaupum á 83% hlut í breska knattspyrnuliðinu West Ham United. Björgólfur Guðmundsson stóð að kaupunum með Eggerti og var hann gerður að heiðursforseta félagsins.

© BIG (VB MYND/BIG)
Exista blæs út
Exista keypti allt hlutafé í VÍS eignarhaldsfélagi og varð við það fjármálaþjónustufyrirtæki sem metið var á 288 milljarða króna. Exista var svo skráð á markað á árinu. Gríðarleg umframeftirspurn var í hlutafjárútboðinu. Upphaflega voru boðnir til sölu 150 milljónir hluta á genginu 19,5 til 21,5, en vegna eftirspurnarinnar var ákveðið að selja 300 milljónir hluta á genginu 21,5.
***
Greiningarfyrirtækin Credit Sights og Barclays Capital sendu frá sér skýrslur um íslenska fjármálakerfið, en í þeim kom fram að staða íslensku bankanna væri veikari en uppgjör bentu til og að skráður hagnaður þeirra væri ofmetinn. Það var hins vegar ekki fyrr en þegar greiningarfyrirtækið Fitch bættist í hópinn og breytti lánshæfishorfum ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar að syrta tók í álinn. Sagði Fitch að ástæðan væri vaxandi ójafnvægi í hagkerfinu. Gengi krónunnar féll í mars. Greiningardeild Danske Bank þótti rétt að hella sér í hóp gagnrýnenda íslensku bankanna og spáði því að sjóða myndi upp úr hér á landi. Íslensku bankarnir tóku hraustlega á móti og sögðu skýrsluna morandi í rangfærslum og villtum fantasíum. Valgerður Sverrisdóttir velti því fyrir sér hvort skert sjálfsmynd Dana spilaði þarna inn í.
***
Slagur Seðlabankans við verðbólguna reyndist erfiður og í maí hækkaði bankinn stýrivexti sína upp í 12,25%. Áttu þeir eftir að hækka enn meira.
***
Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækinu Dagsbrún var skipt upp á árinu í Teymi annars vegar og 365 hins vegar. Innan Teymis voru fjarskipta- og upplýsingatæknihluti Dagsbrúnar, en 365 annaðist fjölmiðlahlutann. Skuld, sem varð til vegna kaupa Dagsbrúnar og Senu, var breytt í hlutafé í þriðja félaginu K2.
***
Meðal annars sem gerðist á árinu var að bandaríska varnarliðið lauk 55 ára veru sinni hér á landi, Ikea opnaði verslun sína í Kauptúni í Garðabæ og atvinnuhvalveiðar hófust í október eftir að hafa verið bannaðar frá árinu 1989.
2007
Árið 2007 fékk strax eftir bankahrunið afar slæmt orð á sig og var ártalið notað sem lýsing á óhóflegri neyslu og fjármálavitleysu. Vissulega má finna dæmi í fréttaflutningi þessa árs um slíkan íburð, t.d. viðtal við forstjóra einkaþotufélags og frétt um að 80% kaupenda sumarbústaða taki erlend lán. Eins er ómögulegt að horfa yfir árið án þess að hafa í huga að hrunið mikla var handan við hornið.

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Nova stofnað
Á árinu var fjarskiptafyrirtækið Nova stofnað, en það var og er enn í eigu félags Björgólfs Thors Björgólfssonar. Liv Bergþórsdóttir forstjóri sagði að félagið myndi einbeita sér að hinni nýju 3G tækni í stað hefðbundinnar farsímaþjónustu. „Með 3G má segja að netið sé loks komið í farsímann. Allt sem hægt er að gera á netinu verður hægt að gera í farsímanum líka,“ sagði Liv í samtali við Viðskiptablaðið.
***
Björgólfur kom víða við á árinu því Novator keypti Actavis út úr kauphöllinni fyrir ríflega 300 milljarða króna. Gengið var frá kaupunum í júlí eftir tveggja mánaða fremur stormasama aðsiglingu. Tilboð Novator hljóðaði upphaflega upp á 0,98 evrur á hlut, sem hefði þýtt markaðsverðmæti upp á um 285 milljarða króna, í maí. Novator fann sig hins vegar knúið til að hækka tilboð sitt í 1,075 evrur á hlut eftir að hluthafar lýstu yfir mikilli óánægju með tilboðið, sem ekki var talið endurspegla raunvirði félagsins.
***
Sparnaðarleiðin Icesave, sem Landsbanki Íslands hóf að bjóða á Englandi 10. október 2006, þótti hið mesta snilldarbragð og sagði Sigurjón Árnason bankastjóri að góðar viðtökur Icesave hefðu gerbreytt stöðu bankans.
***
Kauphöll Íslands rann inn í samnorrænu kauphöllina OMX.
***
Um páskana urðu talsverðar breytingar á eignarhaldi í Glitni og náðu Baugur og FL Group undirtökunum í bankanum. Í kjölfarið var skipt um bankastjóra og Lárus Welding tók við af Bjarna Ármannssyni, sem sinnt hafði starfinu í áratug.
***
Að loknum kosningum tók ný stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við stjórn landsins undir forystu Geirs H. Haarde. Hlaut stjórnin viðurnefnið Þingvallastjórnin.
***
Meðal annars sem átti sér stað árið 2007 var að friðarsúla Yoko Ono var tendruð í fyrsta sinn í október, Kárahnjúkavirkjun var gangsett með formlegum hætti, reykingar voru bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum og Sjónvarpsþáttaröðin Næturvaktin var frumsýnd.
2008
Óhjákvæmilegt er í ljósi atburða ársins 2008 að veita þeim meiri athygli í umfjöllun sem þessari. Fáir einstakir atburðir hafa haft eins mikil áhrif, til skemmri tíma að minnsta kosti, og hrun íslenska fjármálakerfisins.
***
Mótmælaaðgerðir vörubílstjóra, sem m.a. snerust um hækkandi eldsneytisverð, mögnuðust enn í apríl og ollu verulegum töfum og kostnaði annarra vegfarenda.
***
Seðlabanki Íslands greindi frá skiptasamningum við seðlabanka í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, sem létti nokkuð þrýsting á mörkuðum. Heimild var fengin á Alþingi fyrir töku á 500 milljarða króna láni til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Ólafur Ragnar Grímsson var sjálfkjörinn í embætti forseta lýðveldisins þegar framboðsfrestur rann út.
***
Í júní lauk Baugsmálinu loksins fyrir Hæstarétti með því að sök allra ákærðu, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Tryggva Jónssonar og Jóns Geralds Sullenberger var staðfest, en þeir fengu skilorðsbundna refsidóma. Áhrifin voru helst talin þau að Jón Ásgeir gæti ekki lengur setið í stjórnum fyrirtækja meðan á skilorðinu stæði. Atvinnuhorfur versnuðu enn og var talsvert um uppsagnir í fluggeiranum. Þar af misstu um 200 manns vinnuna hjá Icelandair.
***
Í júlí skipti FL Group um nafn og hlaut nafnið Stoðir og Baugur Group fluttist úr landi, sem gerði það að verkum að Jón Ásgeir gat áfram setið í stjórn fyrirtækisins.
***
Í september kynnti forsætisráðherra 30 milljarða króna lántöku ríkissjóðs til styrkingar gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans og því að Ísland, Noregur og Liechtenstein myndu ganga inn í samkomulag ESB um viðbrögð við fjármálakreppu. Í tölum Seðlabankans kom fram að Íslendingar hefðu tapað 117 milljörðum króna á erlendum eignum á öðrum ársfjórðungi ársins og á sama tíma jókst viðskiptahallinn um 128 milljarða króna. Ónýttar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru sagðar 2.400 talsins, en markaðurinn var í klakaböndum. Gjaldþrot erlendra stórbanka gerðu vanda íslensku bankanna enn erfiðari eftir því sem lánalínur heimsins slitnuðu þvers og kruss og íslenska krónan kolféll. Seðlabanki Bandaríkjanna hafnaði aðild íslenska bankans að gjaldeyrisskiptasamningi sem gerður hafði verið við norræna seðlabanka. Forsætisráðherra sneri óvænt heim frá Bandaríkjunum, þar sem hann var að vinna að kjöri Íslands í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, og í kjölfarið fylgdu mikil fundahöld um efnahagsástandið. Þann 29. september var greint frá því að í vikunni áður hefði Glitnir leitað eftir neyðarláni frá Seðlabankanum. Seðlabankinn taldi tryggingar Glitnis hins vegar lítils virði og gerði ríkisstjórnin kauptilboð í 75% hlut í bankanum. Erlend matsfyrirtæki höfðu litla trú á aðgerðinni og þrýstingur á hina bankana jókst mjög.

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Bankarnir hrundu
Í upphafi októbermánaðar voru miklar viðsjár í fjármálalífi þjóðarinnar og mikið fundað á vettvangi ríkisstjórnar, banka og eftirlitsaðila. Geir H. Haarde sagði að kaup ríkisins á Glitni væru ekki endalok hremminganna, en helstu eigendur bankans voru langt frá því að vera sáttir og talaði Jón Ásgeir um bankarán í því samhengi. Sparifjáreigendur fjölmenntu í afgreiðslur bankanna og kom til seðlaþurrðar í ákveðnum tilvikum, þótt ekki væri hægt að tala um að áhlaup hafi verið gert.
Þann 6. október flutti Geir Haarde frægt sjónvarpsávarp og lagði í kjölfarið fram frumvarp til neyðarlaga, sem samþykkt var á methraða á þingi. Fékk Fjármálaeftirlitið víðtækar heimildir til inngripa í fjármálakerfinu, en heimildir Íbúðalánasjóðs til yfirtöku lána voru rýmkaðar. Á þessum tíma var gengi krónunnar í raun óþekkt stærð. Forsendur fyrir kaupum ríkisins á Glitni brustu og tók FME við stjórn hans og skipaði yfir hann skilanefnd. Daginn eftir fór Landsbankinn sömu leið. Bresk og hollensk yfirvöld gerðu íslenskum stjórnvöldum það ljóst að þau væntu þess að Íslendingar ábyrgðust að fullu innstæður í íslenskum bankaútibúum ytra. Þann 9. október fullyrti Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, að Íslendingar ætluðu ekki að standa við skuldbindingar sínar. Í framhaldinu gerðu bresk stjórnvöld áhlaup á Kaupþing, beittu ákvæðum hryðjuverkalaga gegn Landsbankanum og íslenskum stjórnvöldum og tóku yfir Kaupthing Singer & Friedlander bankann. Í kjölfarið féll Kaupþing síðastur stóru bankanna þriggja.
Morguninn 9. október voru bankarnir þrír því allir komnir undir stjórn skilanefnda. Rætt var um að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en Bretar og Hollendingar beittu sér eindregið gegn því að af slíkri aðstoð yrði áður en samið yrði um afdrif Icesave-reikninga Landsbankans. Vandkvæði með gjaldeyrisverslun settu milliríkjaviðskipti í hættu. Um miðjan mánuðinn gerði Seðlabankinn auknar kröfur til trygginga þeirra fjármálafyrirtækja sem eftir lifðu og setti það sum þeirra í bobba. Vikuleg mótmæli á Austurvelli hófust og áttu þau eftir að standa þar til ríkisstjórnin sagði af sér.
***
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking.
2009
Icesave-málið brann á almenningi á Íslandi, en einnig í Bretlandi og Hollandi, þar sem tugir þúsunda innstæðueigenda áttu verulegra hagsmuna að gæta. Samningaviðræður milli ríkisstjórna Hollands og Bretlands við þá íslensku stóðu yfir stærstan hluta ársins 2009 og í árslok lá fyrir samningur sem samþykktur var á Alþingi í desember. Ólafur Ragnar Grímsson forseti neitaði hins vegar að staðfesta lögin í janúar 2010.
***
Ný vinstristjórn lagði strax mikla áherslu á að gerðar yrðu breytingar á yfirstjórn Seðlabankans og að þar kæmi að nýr maður. Engum duldist þó að markmiðið væri að koma Davíð Oddssyni frá völdum í bankanum og tókst það á vormánuðum þegar þeir Davíð, Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason hurfu úr bankanum og Norðmaðurinn Svein Harald Øygard tók tímabundið við þar til Már Guðmundsson var ráðinn.

Búsáhaldabyltingin
Í janúarlok var orðið ljóst að ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar héngi á bláþræði, en á þessum tíma náði búsáhaldabyltingin hámarki. Svo fór að þann 1. febrúar tók fyrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardótturvið stjórnartaumunum og Sjálfstæðisflokkurinn fór í stjórnarandstöðu í fyrsta sinn í átján ár. Eins og gefur að skilja einkenndist árið 2009 af mikilli svartsýni í kjölfar hrunsins haustið á undan. Ljóst varð strax að árið 2008 yrði eitt slakasta ár lífeyrissjóðanna frá því að mælingar hófust á heildarávöxtun lífeyrissjóðakerfisins.
***
Í febrúar óskaði Baugur Group eftir greiðslustöðvun. Jón Ásgeir Jóhannesson barðist lengi við að bjarga því sem eftir var af viðskiptaveldinu, þ.e. Högum, en á endanum tók Arion banki það félag yfir og eftir langa mæðu var félagið skráð á markað.
***
Uppgjöri á milli gömlu og nýju bankanna var lokið á miðju ári 2009. Árið 2010 var svo gengið frá því að kröfuhafar gömlu bankanna myndu eignast hlut í þeim nýju í gegnum sérstök eignarhaldsfélög. Mikið var deilt um það á hvaða gengi eignir gömlu bankanna, sem að langstærstum hluta voru í formi útlána, voru fluttar yfir í þá nýju.
***
Ný ríkisstjórn ákvað að sækja um aðild að Evrópusambandinu, en aldrei tókst að klára þær viðræður.
***
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hreppti annað sætið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með laginu Is it True?
2010
Rannsóknarskýrsla Alþingis kom út í apríl þetta ár og þrátt fyrir að komið hafi fram gagnrýni á sumt sem í skýrslunni er að finna er ekki hægt að deila um að um eitt áhrifamesta skjal síðari tíma var að ræða. Meðal þess sem fjallað var um í Viðskiptablaðinu þegar skýrslan kom út var að eigið fé bankanna hefði verið stórlega ofmetið og að um 70% þess hefði verið vegna lána þeirra með veði í eigin bréfum.
***
Eyjafjallajökull gaus og fóru sökum þess alþjóðlegar flugsamgöngur á hliðina. Augu heimsins beindust því að Íslandi um nokkurra daga skeið. Því hefur verið haldið fram að eldgosið hafi verið hin besta auglýsing fyrir Ísland.
***
Árið byrjaði brösuglega fyrir Bakkavararbræðurna Ágúst og Lýð Guðmundssyni en í janúarbyrjun var greint frá því að þeir myndu missa eignarhaldsfélagið Existu. Í Viðskiptablaðinu var einnig greint frá því að þeir ættu möguleika á eignarhlut í Bakkavör ef vel gengi hjá því félagi að þjónusta kröfuhafa sína. Nauðasamningur Bakkavarar var lagður fram skömmu síðar og staðfestur í byrjun mars. Nauðsamningur Existu var lagður fram um haustið og staðfestur í október. Annar maður, sem áberandi hafði verið í viðskiptalífinu fyrir hrun, Ólafur Ólafsson, fékk að halda Samskipum. SMT Partners, félag í eigu Ólafs og helstu stjórnenda Samskipa, eignaðist um 90% hlut í félaginu eftir fjárhagslega endurskipulagningu.

© BIG (VB MYND/BIG)
Jón Gnarr í ráðhúsið
Besti flokkurinn sigraði borgarstjórnarkosningar og varð skemmtikrafturinn góðkunni, Jón Gnarr borgarstjóri. Flokkurinn fór óhefðbundnar leiðir í kosningabaráttu sinni og er þessi niðurstaða talin einhver óvæntustu tíðindi kosningasögunnar.
***
Haustið 2010 féll dómur í einu hinna svokölluðu gengislánamála. Þótt dómarnir ættu eftir að verða fleiri setti þessi dómur línurnar og á endanum fór svo að gengistryggð krónulán voru dæmd ólögleg, lántakendum slíkra lána til mikils léttis.
***
Í janúar þetta ár synjaði Ólafur Ragnar Grímsson lögum um Icesave-samkomulagið staðfestingar og var málið kolfellt í þjóðaratkvæðagreiðslu í mars. Nýr samningur við Breta og Hollendinga var svo kynntur til sögunnar í desember, en hann átti eftir að fara sömu leið.
***
Alþingi samþykkti að höfða mál fyrir landsdómi gegn Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, vegna refsiverðrar háttsemi hans í embætti í aðdraganda hruns.
2011
Á árunum eftir hrun voru mörg sveitarfélög í alvarlegum skuldavanda, sum hver vegna lántöku í erlendri mynt. Í hópi stærri sveitarfélaga þótti staða Hafnarfjarðar einna erfiðust, en í maí greindi Viðskiptablaðið frá því að mánuðinn áður hefði 4,2 milljarða króna lán frá hinum þýska Depfa bank fallið á gjalddaga áður en samið var um endurfjármögnun þess. Þá kom einnig fram að til viðbótar við þetta lán hefði bærinn tekið annað og stærra lán sem félli á gjalddaga árið 2012. Önnur sveitarfélög í erfiðri skuldastöðu voru m.a. Reykjanesbær og Fjarðabyggð.
***
Nýir og eldri skattar komust í fréttirnar á árinu, því auðlegðarskatturinn var hækkaður auk þess sem lagður var sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki. Þá var fjallað um það að gjaldeyrishöftin reyndust ekki eins þétt og talið var, því útlendingar gætu farið inn og út um höftin með því að taka hinn svokallaða „hring“. Erlendum eigendum íbúðabréfa var á þeim tíma heimilt að fara með vaxta- og höfuðstólsgreiðslur úr landi. Í nokkrum mæli komu þeir aftur inn með féð, keyptu aflandskrónur og fjárfestu aftur í skuldabréfunum. Þannig væri hægt að hagnast á mismuninum á seðlabankagenginu og gengi aflandskróna.
***
Bandaríski fjölmiðlarisinn Turner Broadcasting Systems gerði í júlí yfirtökutilboð í Latabæ og greindi Viðskiptablaðið frá málinu. Samningurinn var háður samþykkis 90% hluthafa. Einnig var það skilyrði að Magnús Scheving myndi áfram stýra félaginu og leika Íþróttaálfinn. Nokkrum vikum síðar var formlega tilkynnt um kaup fjölmiðlarisans á Latabæ Magnúsar.

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Endurkoma Skúla Mogensen
Í janúar dró til tíðinda í MP banka, en Viðskiptablaðið greindi þá frá því að til stæði að skipta MP banka í tvennt og að nýir eigendur kæmu að rekstrinum. Margeir Pétursson, stofnandi bankans, og aðrir eigendur myndu með þessum hætti fara úr eigendahópi bankans. Svo fór að nýr eigendahópur undir forystu Skúla Mogensen tók yfir nafn og rekstur viðskiptabankahluta MP banka á nýrri kennitölu, en það sem eftir stóð fylgdi Margeiri. Skúli stofnaði einnig flugfélagið Wow air í nóvember sama ár og klykkti svo út með því að tróna á toppi þeirra einstaklinga sem greiddu hæstan auðlegðarskatt á árinu.
***
Arion banki seldi loks Haga til nýrra eigenda og var félagið skráð í Kauphöllina. Hæstiréttur dæmdi í svokölluðu Mótormax-máli og átti niðurstaðan eftir að hafa víðtæk áhrif. Fjölmyntalán voru dæmd ólögmæt.
***
Árið 2011 rann samningur íslensku ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins út og þar með var beinum eða óbeinum afskiptum sjóðsins af íslenskri hagstjórn lokið.
2012
Sá einstaki atburður gerðist á árinu að forstjóra Fjármálaeftirlitsins, Gunnari Andersen, var sagt upp störfum vegna gruns um brot í starfi. Það var svo fyrr á árinu 2014 sem dómur gekk í Hæstarétti í máli Gunnars þar sem hann var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa látið taka saman gögn um alþingismann og koma þeim til birtingar í DV.
***
Tvívegis árið 2012 kom það fyrir í nóvember að viðskipti með bréf Íbúðalánasjóðs voru stöðvuð tímabundið í Kauphöll Íslands. Í annað skiptið var það vegna fréttaskýringar í Viðskiptablaðinu og í hitt skiptið vegna ummæla Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur alþingismanns. Í sama mánuði skilaði starfshópur um málefni sjóðsins skýrslu um stöðu sjóðsins. Ákveðið var að ríkissjóður myndi leggja Íbúðalánasjóði til 13 milljarða króna framlag til að bæta eiginfjárstöðuna.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Hlutabréfamarkaðurinn rankar við sér
Eftir nokkuð langa bið komst loks hreyfing á íslenskan hlutabréfamarkað á árinu 2012. Í raun voru fyrstu skrefin tekin með skráningu Haga á markað í desember 2011, en árið 2012 voru þrjú ný hlutafjárútboð, útboð Regins, Eimskips og Vodafone. Útboð Eimskips olli töluverðum úlfaþyt á markaði, en bæði þótti útboðsgengið of hátt og þá lýstu nokkrir lífeyrissjóðir sig ósátta við kaupréttarsamninga sem gerðir höfðu verið við stjórnendur fyrirtækisins.
***
Í nóvember gekk yfir mikið ofsaveður og var vindstyrkurinn það mikill að fólk fauk um koll. Myndskeið af manni sem fauk um koll skammt frá Sæbrautinni vakti mikla athygli. Óveðrið olli talsverðum skemmdum og námu tryggingabætur vegna þess á annað hundrað milljón króna.
***
Störukeppni lággjaldaflugfélaganna tveggja, Wow air og Iceland Express, lauk með kaupum hins fyrrnefnda á vörumerki og flugáætlun þess síðarnefnda. Tekið var fam að ekki væri um sameiningu félaganna að ræða. Samkeppnin milli þeirra hafði verið hörð allt frá stofnun Wow air og höfðu forsvarsmenn fyrirtækjanna skipst á skotum í fjölmiðlum.
***
Landsdómur sýknaði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, af þremur ákæruliðum af fjórum. Geir var sakfelldur fyrir eitt ákæruatriðið, en var ekki gerð refsing í málinu og var allur sakarkostnaður, þar með talinn kostnaður Geirs sjálfs, greiddur úr ríkissjóði.
***
Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands með 52,8% atkvæða. Fimm manns buðu sig fram gegn Ólafi Ragnar og fékk Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona næsflest atkvæði eða 33,2%.
2013
Vorið 2013 urðu töluverðar breytingar á hinu pólitíska landslagi. Í aðdraganda kosninga ákváðu báðir formenn stjórnarflokkanna, Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, að stíga til hliðar. Jóhanna hætti þátttöku í stjórnmálum, en Steingrímur ekki. Nýjum formönnum Samfylkingar og Vinstri grænna tókst hins vegar ekki að koma í veg fyrir kosningasigur Framsóknar, sem myndaði nýja ríkisstjórn að kosningum loknum með Sjálfstæðisflokki.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Fullnaðarsigur í Icesave
Segja má að Icesave-málinu hafi loks lokið með dómi EFTA-dómstólsins í janúar 2013, en í honum var alfarið fallist á rök Íslendinga. Tekist var á um það hvort Ísland hefði brotið gegn Evróputilskipun um innstæðutryggingar með því að greiða ekki eigendum Icesave-reikninga lágmarksinnstæðutryggingu. Hins vegar hvort Ísland hefði brotið gegn almennum reglum EES-samningsins um bann við mismunun á grundvelli þjóðernis. Eftir fjögur ár og tvær þjóðaratkvæðagreiðslur var málinu lokið.
***
Sakborningar fengu þunga dóma í hinu svokallaða Al-Thani máli í desember. Réttarhöldin áttu að fara fram í apríl þetta ár, en rétt áður en það gerðist sögðu Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einarssonar, og Ragnar Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, sig frá málinu. Í kjölfarið voru þeir dæmdir til greiðslu réttarfarssektar.
***
Fyrstu skóflustungurnar voru teknar að nýju Hátæknisetri Alvogen í Vatnsmýrinni í nóvember. Þar eru alþjóðlegar skrifstofur félagsins til húsa sem og þróunarsetur líftæknilyfja. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu sköpuðust 400 ný störf á framkvæmdatímanum og 200 ný framtíðarstörf verði til hjá Alvogen í hátækniiðnaði. Heildarfjárfesting félagsins var áætluð um 25 milljarðar króna. Þar með talið var uppbygging á aðstöðu á Íslandi fyrir um 8 milljarða króna.
***
Hlutabréf í tryggingafélögunum TM og VÍS voru skráð á markað í kjölfar hlutafjárútboða. Töluverðar umræður spunnust í kjölfarið um það hvað gæti talist eðlileg umframeftirspurn, en í tilkynningum að loknu útboði TM kom fram að eftirspurn hefði verið 357-föld á við framboð á bréfunum.
2014
Lítið gos varð í Holuhrauni 29. ágúst, sem stóð aðeins í fáar klukkustundir. Þetta litla gos var aðeins forsmekkurinn að því sem kom síðar, því 31. ágúst hófst stórt gos á sama stað. Hraunið breiddi úr sér yfir tuga ferkílómetra svæði. Gosið var fjarri byggðu bóli og hafði því ekki áhrif á líf fólks, fyrir utan brennisteinsmengun sem olli óþægindum og þá helst á Austurlandi.
***
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram þann 31. maí. Jón Gnarr hafði tilkynnt að hann myndi ekki bjóða sig fram á ný í Reykjavík og jafnframt að Besti flokkurinn myndi líða undir lok. Samfylkingin, Björt framtíð, Píratar og VG mynduðu meirihluta í borginni og varð Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
***
Skriður komst á ný stóriðjuáform á árinu. Stefnt var að því að byggja hér á landi þrjár kísilmálmverksmiðjur og eina sólarkísilverksmiðju. United Silicon og Thorsil hugðust byggja í Helguvík, PCC á Bakka við Húsavík og Silicor Materials hugðist reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Skemmst er frá því að segja að af þessum fjórum verkefnum urðu tvö að veruleika, PCC á Bakka og United Silicon í Helguvík. Saga verksmiðjunnar í Helguvík átti þó eftir að verða fremur endasleppt því fyrirtækið varð gjaldþrota fljótlega eftir að það hóf rekstur.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Leiðréttingin samþykkt
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra kynntu niðurstöður skuldaniðurfærslu ríkisstjórnarinnar þann 10. nóvember. Þar með varð helsta kosningaloforð Framsóknarflokksins að veruleika. Aðgerðirnar snérust annars vegar um beina niðurfærslu verðtryggðra húsnæðislána og hins vegar heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán eða til húsnæðiskaupa. Kostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðanna nemur um 150 milljörðum króna.
***
Erlendum ferðamönnum fjölgaði enn á Íslandi og þegar árinu lauk höfðu tæplega milljón erlendir gestir sótt landið heim. Árið 2013 varð ferðaþjónustan í fyrsta skiptið sú atvinnugrein sem skapaði mestar gjaldeyristekjur hérlendis eða 275 milljarða króna, og tók þar með fram úr sjávarútveginum. Árið 2014 numu gjaldeyristekjurnar 303 milljörðum króna.
***
Tvö fyrirtæki voru skráð í Kauphöllina á árinu en það voru tryggingafélagið Sjóvá og útgerðarfyrirtækið HB Grandi. HB Grandi varð fyrsta félagið á Íslandi sem færði sig af First North markaðnum yfir á aðalmarkaðinn.
***
Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér dómsmálaráðherra eftir lekamálið svokallaða. Sagðist hún gera það af persónulegum ástæðum en ekki pólitískum. Ólöf Nordal tók við embættinu.
Nánar er fjallað um málið í 30 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér.