Leiguflugið ehf. (Air Broker Iceland), sem sérhæfir sig í útleigu flugvéla og þyrlna hefur lokið hlutafjáraukningu með þátttöku FnFI ehf. og Vesturflatar ehf. sem eignast 49% í félaginu.
Stofnendur Leiguflugsins ehf. eru Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermannsson eru með reynslu úr greininni gegnum störf sín hjá Icelandair, Flugfélagi Íslands og Flugfélaginu Erni. Ásgeir er fyrrverandi framkvæmdastjóri Ernis.
Í tilkynningu segja þeir tækifærin í greininni margvísleg en leiguflugsmarkaður sé vaxandi um allan heim og eftirspurn innanlands hafi aukist.
FnFI ehf. er fjárfestingarfélag í eigu hjónanna Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar, stofnanda og forstjóra Kerecis, og Fanneyjar Kr. Hermannsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins.
Vesturflöt ehf. er fjárfestingarfélag í eigu hjónanna Guðmundar Óskarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Icelandair og núverandi framkvæmdastjóra vöru- og markaðsmála hjá Kerecis, og Kristínar Þorleifsdóttur.
„Fyrir okkur er mikill styrkur fólginn í því að fá Fanneyju, Fertram, Guðmund og Kristínu um borð. Félagið er í góðum vexti og við hlökkum til að byggja það upp til framtíðar í samstilltum eigendahópi,” segir Ásgeir Örn, framkvæmdastjóri Leiguflugsins.
„Markaðurinn fyrir flug á Íslandi er að taka miklum breytingum, við sjáum aukna eftirspurn á ýmsum sviðum, t.d. í sjúkraflugi þar sem við bjóðum sérútbúnar sjúkraþotur sem tryggja betri þjónustu við sjúklinga, betri vinnuaðstöðu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og stytta verulega sjúkraflugtímann frá því sem Íslendingar eru vanir. Opnun nýrra flugvalla á Grænlandi opnar líka ýmis tækifæri í auknum flugsamgöngum milli þjóðanna.“
Samstarfsaðilar Leiguflugsins ehf. eru yfir hundrað talsins, sem félagið segir að tryggi sér aðgengi að flugvélum og þyrlum af öllum stærðum og gerðum með stuttum fyrirvara.
„Við getum mætt svo til öllum óskum viðskiptavina, bæði þeirra sem vilja fljúga á milli staða í Grænlandi eða komast til Afríku. Við eigum samleið með þeim sem vilja skoða heiminn,” segir Ásgeir Örn.
Guðmundur Fertram: Höfum trú á flugmarkaðnum
Guðmundur Fertram segir bæði viðskipta- og samfélagslegar forsendur vera fyrir fjárfestingu þeirra hjóna.
„Við höfum trú á flugmarkaðnum og stofnendum félagsins, en líka mikinn áhuga á samgöngumálum í stærra samhengi. Flugsamgöngur eru mikilvægar fyrir land og þjóð, og við teljum að aukið fjárhagslegt bolmagn þessa metnaðarfulla félags skili samfélagslegum ávinningi,” segir hann.
„Leiguflug er mikilvægur valkostur fyrir hópa, fyrirtæki og íþróttafélög, hvort sem þeir þurfa að komast til Ísafjarðar eða stórborga erlendis.”