Guðmundur Hafsteinsson, stjórnarformaður Icelandair var meðal þátttakenda í pallborði á ársfundi Íslandsstofu í gær. Hann sagðist óttast frekari álögur á íslenska ferðaþjónustu.

Ríkisstjórnin boðaði í stefnuyfirlýsingu sinni komugjöld og auðlindagjöld á fjölfarna ferðamannastaði. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, gagnrýndi einnig áform ríkisstjórnarinnar í ávarpi sínu á aðalfundi flugfélagsins á dögunum.

Guðmundur bjó í Kaliforníu þegar Donald Trump var kjörinn forseti í fyrra skiptið árið 2016 og gaf fundargestum ágæta innsýn inn í ástæður þess að Trump náði kjöri. Hann sagði að það hefði alls ekki átt að koma á óvart að Bandaríkjamenn hafi valið einangrunarsinna sem forseta en ekki alþjóðasinna.

Hann vitnaði prófessor í MIT sem sagði við Guðmund að Hillary Clinton væri heppin að etja kappi við svo slakan frambjóðanda eins og Trump, því Hillary væri líka svo slakur frambjóðandi.

Einnig vitnaði hann í vin sinn sem er í stálframleiðslu sem sagðist styðja Trump. Því fyrir hinn vinnandi mann snerist þetta um efnahaginn.

Frá panelumræðunum.
© Sigurjón Ragnar Sigurjónsson (SigurjonRagn)

Guðmundur ræðir um Trump undir lok pallborðsins, eða þegar um 25 mínútur eru eftir af fundinum.