Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur samþykkt samruna Samkaupa og Atlögu (áður Heimkaup) sem eftirlitið hefur haft til skoðunar. Eftirlitið hafði áður samþykkt heimild fyrirtækjanna til að byrja að framkvæma samrunann áður en skoðun eftirlitsins lyki og hefur sú vinna verið í gangi.

Samhliða þessu hefur Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa, ákveðið að láta af störfum hjá smásölufyrirtækinu. Hann mun gegna starfinu þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Við sameiningu Samkaupa og Atlögu (Heimkaupa) tel ég rétt að staldra við og meta eigin stöðu. Ég hef starfað hjá félaginu í yfir 20 ár og hef um hríð haft áhuga á að skoða önnur tækifæri. Ég hef því tilkynnt stjórnarformanni félagsins að ég hyggist stíga til hliðar sem forstjóri Samkaupa. Ég treysti sterku stjórnendateymi félagsins til að taka við keflinu og ég mun vinna með stjórn þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn,“ segir Gunnar Egill.

„Ég tók við forstjórastarfi Samkaupa fyrir þremur árum og lagði þá af stað í vegferðina að stækka félagið, bæði á dagvörumarkaði og með fjölgun tekjustoða. Ég tel að enn séu fjölmörg tækifæri til að nýta verslunarnet Samkaupa betur, bæði með aukinni netverslun og með því að taka inn vörur sem félagið er ekki að selja í dag. Vildarkerfi Samkaupa er einn af lykil aðgreiningarþáttum félagsins en það telur nú rúmlega 90.000 vildarvini og veitir inneign þegar verslað er. Hægt er að nýta vildarkerfið enn betur við að auka tryggð viðskiptavina og sölu til þeirra.“

Samkaup og Heimkaup tilkynntu í desember síðastliðnum um að félögin hefðu náð samkomulagi um helstu forsendur sameiningar félaganna. Stjórnir félaganna undirrituðu samrunasamning í febrúar.

Samkomulagið felur í sér að Samkaup sé yfirtökufélagið og sameinast þar með öllum einingum Heimkaupa á dagvörumarkaði og greiðir fyrir þau með útgefnu hlutafé í Samkaupum. Hluthafar Heimkaupa eignast þar með rúmlega 10% hlutafjár í sameinuðu félagi.

Gunnar Egill segir að samruninn sé í takt við framtíðarstefnu Samkaupa og feli í sér margvísleg tækifæri fyrir sameinað félag. Söluvöxtur sé áætlaður um 14% og sameiginlegt verslunarnet fer upp í 70 verslanir um allt land. Framundan sé lokafrágangur samruna, samþætting og afléttingu síðustu fyrirvara í samræmi við samrunasamning.

„Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu en félagið mun stækka og eflast við samrunann. Nettó hefur aukið sína markaðshlutdeild undanfarið með breyttri verðstefnu og stækkun verslananetsins mun styrkja stöðu Samkaupa enn frekar. Prís opnaði um mitt síðasta ár og hefur þegar skapað sér sterka stöðu á lágvörumarkaði með rekstrarhagkvæmni að leiðarljósi og með því að bjóða ávallt lægsta verðið. Á þægindamarkaði munu Samkaup geta aukið þjónustu sína enn frekar með stærra verslunarneti. Þá fjölgar í hluthafahópi Samkaupa með aðkomu nýrra einkafjárfesta sem mun einnig styrkja félagið, bæði fjárhagslega og í allri framtíðar stefnumótun,“ segir Gunnar Egill.

„Það er ánægjulegt að samruni Samkaupa og Atlögu (Heimkaupa) hafi verið samþykktur af Samkeppniseftirlitinu en hann mun styrkja félagið til framtíðar,“ segir Sigurbjörn Gunnarsson, stjórnarformaður Samkaupa.

„Það eru jafnframt tímamót að Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri hefur óskað eftir að stíga til hliðar. Gunnar hefur starfað hjá Samkaupum í yfir 20 ár í hinum ýmsu störfum og síðastliðin 3 ár sem forstjóri. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka Gunnari fyrir mikil og góð störf í þágu félagsins á undanförnum tveimur áratugum og óska honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Leit að nýjum forstjóra er hafin en Gunnar mun sinna starfinu þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.“