Norski knattspyrnumaðurinn Erling Braut Haaland og Gustav Magnar Witzøe, erfingi laxeldisfélagsins Salmar hafa fjárfest í norska-sænska sprotafyrirtækinu Db, sem hannar og selur töskur og bakpoka meðal annars fyrir íþróttir. Dagens Industri greinir frá.
Fjárfesting Haaland og Witzøe fylgir í kjölfar þess að LVMH Luxury Ventures, móðurfélag franska tískurisans LVMH, keypti minnihluta í Db, sem gengur einnig undir nafninu Db Journey, í nóvember síðastliðnum.
Kaupverðið er ekki gefið upp en forsvarsmenn Db upplýstu um að hinir nýju hluthafar muni gegna mikilvægu hlutverki í útrás félagsins. Fram kemur þó að Truls Brataas, sem stofnaði félagið ásamt Svíanum Jon Olsson, fyrrverandi skíðamanni árið 2009, verði áfram stærsti hluthafi félagsins.
Witzøe er einn af ríkustu einstaklingum Noregs en auðæfi hans eru metin á 3,1 milljarð dala samkvæmt rauntímalista Forbes. Hann er helmingseigandi Salmar sem er aðaleigandi Icelandic Salmon, móðurfélags Arnarlax, með 52,5% hlut.
Faðir hans, Gustav Witzøe eldri, stofnandi SalMar, gaf honum 47% eignarhlut í laxeldisfélaginu árið 2013 þegar hann varð 18 ára. Sonurinn hefur þó lýst því yfir að hann hafi ekki áhuga á að taka við stjórnartaumunum hjá SalMar og einblínir fremur á feril sem fyrirsæta ásamt því að hafa fjárfest í nokkrum fyrirtækjum.
Gustav Witzøe yngri segir í tilkynningu vegna kaupanna í Db að hann hafi varið stórum hluta lífs síns í tískuheiminum og fyrirtækjarekstri. Hjá Db fái hann tækifæri til að sameina þessa tvo heima og stuðla að framgangi þessa skandinavíska ævintýris sem sé aðeins rétt að byrja.
