Bandaríska hagkerfið bætti við 139 þúsund störfum í maí og hélst atvinnuleysi stöðugt í 4,2% miðað við mánuðinn á undan. Á vef Guardian segir að þetta hafi verið hægari vöxtur en undanfarna mánuði en bandarísk fyrirtæki glíma við mikla óvissu þessa stundina.
Talið er að viðskiptastríð Donalds Trumps og viðskiptastefna ríkisstjórnarinnar hafi mikil áhrif á þróunina.
Fækkun 22.000 ríkisstarfsmanna undir hagræðingarstefnu Doge hafði einnig áhrif á atvinnutölur en hátt í 59 þúsund ríkisstarfsmenn hafa misst vinnuna síðan í byrjun janúar.
Launafyrirtækið ADP greindi einnig frá því að launafólk í einkageiranum hefði aðeins aukist um 37.000 í maí, sem er minnsta aukning í meira en tvö ár. Innkaupavísitala, sem mælir framleiðsluástand Bandaríkjanna, mældist einnig 49,9 í apríl og hefur sú vísitala ekki verið jafn lág síðan í júní 2024.