Fjármálaráðuneytið birti á dögunum sundurliðaðan lista yfir endanlega kaupendur í nýafstöðnu útboði á hlutum í Íslandsbanka hf., þar sem fram komu nöfn, kennitölur og kaupvirði hvers og eins aðila.
Persónuvernd lagðist gegn því að birtar yrðu upplýsingar um kaupendur að óverulegum eignarhlutum í Íslandsbanka en þau sjónarmið fengu ekki hljómgrunn.
Nú er búið að setja upp vefsíðu þar sem hægt er að spila leikinn „Hver keypti?“ en notendur giska þá á upphæðina sem fólk keypti fyrir en nöfn þeirra og aldur birtast notendum.
Hægt er að spila leikinn hér.