Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1 prósentu. Stýrivextir bankans hækka því úr 6,5% í 7,5%.
Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að verðbólguþrýstingur haldi áfram að aukast og verðhækkanir „ná til æ fleiri þátta“. Verðbólga mælist nú 10,2% og undirliggjandi verðbólga sé 7,2%.
„Verðbólguvæntingar til lengri tíma eru enn vel yfir markmiði og raunvextir bankans hafa lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar. Útlit er fyrir að verðbólga verði meiri á næstunni en spáð var í febrúar þótt hægt hafi á húsnæðismarkaði.“
Nefndin bendir einnig á að hagvöxtur hafi verið mikill í fyrra „og vel umfram það sem þjóðarbúskapurinn getur staðið undir til lengdar“. Þá hafi innlend eftirspurn aukist meira en gert var ráð fyrir í febrúar „og vísbendingar eru um að hún hafi verið kröftugri í ársbyrjun en talið var“. Jafnframt sé spenna á vinnumarkaði töluverð.
„Við þessar aðstæður er mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags, sérstaklega þegar litið er til mikillar spennu í þjóðarbúinu og komandi kjarasamninga. Peningastefnunefnd mun beita tækjum sínum til að tryggja betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum og koma verðbólgu í markmið.“