Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 1,25 prósentustig, úr 7,5% í 8,75%. Jafnframt hefur nefndin ákveðið að hækka fasta bindiskyldu innlánsstofnana úr 1% í 2%. Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að nauðsynlegt sé að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar.
„Einkum er mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags, sérstaklega þegar litið er til mikillar spennu í þjóðarbúinu og hversu stutt er í næstu kjarasamningalotu. Horfur eru því á að hækka þurfi vexti enn meira til að tryggja betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum og koma verðbólgu í markmið.“
Nefndin segir að efnahagsumsvif hafi verið kröftug það sem af ef ári og samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er spáð 4,8% hagvexti á árinu í stað 2,6% í febrúar. Þar vegi horfir á meiri vexti innlendrar eftirspurnar þungt en einnig sé útlit fyrir kröftugri umsvif í ferðaþjónustu.
Aukin hætta að verðbólga reynist þrálát
Þá hafi verðbólguvæntingar til lengri tíma hækkað og eru vel yfir markmiðið. „Aukin hætta er því á að verðbólga reynist þrálát.“
Verðbólga mældist 9,9% í apríl og bendir nefndin á að undirliggjandi verðbólga haldi áfram að aukast. Þá segir að miklar verðhækkanir mælist í sífellt stærri hluta neyslukörfunnar og útlit sé fyrir að verðbólguþrýstingur verði töluvert meiri í ár og á næsta ári en áður var gert ráð fyrir.