Helstu hlutabréfavísitölurnar á Wall Street hækkuðu í dag þar sem dregið hefur úr spennu í Mið-Austurlöndum.
S&P 500 hækkaði um 1,0%, Dow Jones bætti við sig um 0,9%, og Nasdaq hækkaði sömuleiðis um 0,9%.
Fjárfestar brugðust jákvætt við fréttum um að dregið hefði úr hættunni á truflunum í Hormússundi – einni mikilvægustu flutningsleið hráolíu í heiminum.
Hormússund er mjótt sund á milli Írans og Sameinuðu arabísku furstadæmanna og tengir Persaflóa við Ómanflóa og Indlandshaf. Um sundið fer um 20-30% af allri olíu sem flutt er á sjó. Þegar ógn stafar af lokun bregst olíumarkaðurinn gjarnan með snörum hækkunum.
Í dag lækkaði WTI-hráolía um rúmlega 7% og fór undir 69 dali á tunnuna, á sama tíma og Brent-olía fór niður fyrir 77 dali. Fréttir um að Íran hygðist ekki loka sundinu, þrátt fyrir hernaðarumræður, léttu pressunni af markaðnum. Einnig höfðu yfirlýsingar Donald Trump í dag áhrif, en hann sagði að Bandaríkin myndu auka olíuframleiðslu.
Í kvöld hefur WTI-hráolía haldið áfram að lækka í framvirkum viðskiptum. Tunnan kostar nú 67,22 dal og nemur dagslækkunin 8,97%.
Aðeins fjórum sinnum á síðustu fimmtán árum hefur olían lækkað svo mikið innan dags.