Coca-Cola á Íslandi hættir framleiðslu og sölu á Svala við árslok. Svali hefur verið vinsæll svaladrykkur hér á landi í yfir fjörutíu ár en í tilkynningu þar sem greint er frá þessu segir að vegna breytinga á smekk og þörfum neytenda hafi verið ákveðið að hætta framleiðslu og sölu á Svala við árslok.

„Við höfum átt farsæla áratugi í fylgd Svala en hann er engu að síður barn síns tíma og við erum á annarri vegferð í dag. Kröfur neytenda og smekkur fólks þróast í sífellu og samhliða því þurfum við að fara yfir árangur og stöðu vörumerkja okkar reglulega,“ segir Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca-Cola á Íslandi.

Einar Snorri Magnússon.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Einar segir að undanfarið hafi mikil vinna verið lögð í að endurmóta vöruframboð The Coca-Cola Company á heimsvísu og er það stefna fyrirtækisins að beina kröftum sínum að þeim vörumerkjum sem eru hvað vinsælust. „Með þessari stefnu styrkjum við þau vörumerki sem eru eftir, sköpum rými fyrir nýsköpun og erum betur í stakk búin til að bregðast við þörfum viðskiptavinanna.

Við kveðjum því Svala að svo búnu og þökkum honum samfylgdina!“