Smásölufyrirtækið Hagar hefur ákveðið að hætta söluferli á eignarhlut sínum í Olíudreifingu. Hagar segja í tilkynningu til Kauphallarinnar að móttekin tilboð í 40% hlut fyrirtækisins hafi verið undir væntingum um virði Olíudreifingar.
Formlegri sölumeðferð Festi á 60% hlut sínum í Olíudreifingu er þar með sjálfhætt þar sem ekki eru lengur skilyrði fyrir hendi til að halda áfram sölumeðferð eignarhluta félagsins, að því er kemur fram í tilkynningu sem Festi sendi frá sér skömmu eftir ofangreinda tilkynningu Haga.
Olíudreifing er í 60% eigu Olíudreifingar og 40% eigu Haga. Félögin hófu í lok september formlegt söluferli á Olíudreifingu. Í desember síðastliðnum tilkynntu Festi og Hagar um að þremur aðilum sem skiluðu inn óskuldbindandi tilboðum hafi verið boðið að halda áfram í söluferlinu.
Í kjölfarið var þremur aðilum veittur frekari aðgangur að gögnum og boðið að skila inn uppfærðum óskuldbindandi tilboðum. Hagar segja uppfærð tilboð þessara þriggja aðila vera undir væntingum um virði félagsins.
„Á þeim tíma sem söluferli Olíudreifing hefur staðið yfir hafa markaðsaðstæður félagsins styrkst og sömuleiðis rekstur, sem gengur vel. Við metum það svo að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti verði áfram sterk, eins og hækkun orkuspár gefur til kynna,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.
Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, segir að þó ekki hafi tekist samningar um sölu á þessum tíma þá hafi ferlið skerpt sýn stjórnenda Festi á stöðu og tækifæri Olíudreifingar til framtíðar.
„Olíudreifing stendur styrkum fótum með öfluga stjórnendur og stöðugan rekstur og er Festi fullvisst um að félagið sé tilbúið til að grípa tækifærin framundan sem í orkuskiptunum felast,“ segir Ásta.
Finnur segir Olíudreifingu búa að sterkum innviðum og þrautreyndum, öflugum hópi stjórnenda og starfsfólks og sé þannig í ákjósanlegri stöðu til að nýta tækifæri sem felast í þjónustu með framtíðar orkugjafa samhliða orkuskiptum.
„Hjá Högum og Olís munum við sem eigendur og viðskiptavinir styðja Olíudreifingu áfram í að treysta enn frekar þjónustu og rekstur og það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir þegar kemur að orkuinnviðum landsins, nú og til framtíðar,“ segir Finnur.
Fréttin var uppfærð eftir að Festi sendi frá sér tilkynningu til Kauphallarinnar.