Festi og Ýmir Örn Finnbogason hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem framkvæmdastjóri N1 frá deginum í dag en hann stígur um leið út úr framkvæmdastjórn Festi, að því er kemur fram í tilkynningu Festi til Kauphallarinnar.
Ýmir Örn hefur starfað sem framkvæmdastjóri N1 frá júní 2023 en hann tók við stöðunni af Hinriki Erni Bjarnasyni. Ýmir Örn hafði áður starfað hjá Deloitte sem yfirmaður viðskiptagreiningar frá 2021.
„Síðasta ár hefur verið mjög viðburðarríkt og gaman að hafa fengið að kynnast þessu öfluga félagi sem N1 er. Ég vil þakka öllu starfsfólki félagsins fyrir frábært samstarf,“ segir Ýmir Örn í tilkynningunni.
Starfið auglýst á næstu vikum
Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, mun gegna starfi framkvæmdastjóra N1, þar til nýr aðili verður ráðinn en starfið verður auglýst laust til umsóknar á næstu vikum.
„Við þökkum Ými fyrir gott samstarf og samfylgdina síðastliðið ár og óskum honum velfarnaðar í nýjum verkefnum,“ segir Ásta.