American Airlines hefur þurft að fella niður alls 2.211 áætlanaflugferðir síðan á föstudaginn í síðustu viku. Ku mannekla og óhagstæð veðurskilyrði vera ástæða þess að félagið hefur neyðst til að grípa til þessara ráðstafana. Reuters greinir frá.
Það virðist þó vera betri tíð í vændum þar sem að um 1.800 flugfreyjur og -þjónar sneru aftur til vinnu úr leyfi í dag.
Auk American Airlines hafa flugfélögin Southwest Airlines og Spirit Airlines lent í vandræðum með að finna flugmenn, og flugfreyjur og -þjóna til að manna áhafnir en tímabilið í kringum jól og áramót er yfirleitt annasamt ferðatímabil.