Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka, segir að dagarnir í aðdraganda að starfslokum sínum hjá bankanum sumarið 2023 hafi verið skelfilegur tími. Hún segir síðastu ríkisstjórn hafa náð saman um að láta bankastjórann fara.
„Ég hafði aldrei lent í þeytivindu stjórnmálanna áður. Þá kynnist maður því, það er bara fjandinn laus. Það er bara þannig,“ segir Birna í nýjasta hlaðvarpsþætti Chess after Dark.
Birna, sem hafði gegnt stöðu bankastjóra frá árinu 2008, lét af störfum hjá Íslandsbanka í lok júní 2023, nokkrum dögum eftir að fjármálaeftirlit Seðlabankans sektaði bankann um 1,2 milljarða króna vegna brotalama í tengslum við framkvæmd hans á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka í mars 2022. Jafnframt hættu þrír stjórnarmenn í stjórn bankans, þar á meðal formaður og varaformaður, tveimur vikum síðar.
Bankinn fékk á sig mikla gagnrýni vegna sektarinnar. Birna sagði að þessa vikuna hafi forsvarsmenn bankans reynt að verja hann frá þessari umræðu.
„Þó það sé ekki hlutlaust mat, þá hefur mér alltaf fundist mér ganga vel í þessum PR-málum, hef fundist ég hafa ágætis tilfinningu fyrir því hvernig maður á að tækla þau mál. En þetta var algjörlega stjórnlaust, við réðum ekki neitt við neitt,“ sagði Birna.
Meðal atriða sem bankinn var sektaður fyrir voru hljóðritanir símtala, upplýsingagjöf til viðskiptavina, flokkun fjárfesta og ráðstafanir gegn hagsmunaárekstrum s.s. aðskilnað starfssviða og viðskipti starfsmanna.
Ýmislegt hefði mátt betur fara við framkvæmd útboðsins að sögn Birnu. Hún bendir þó á að útboðið hafi gengið mjög hratt fyrir sig – eftir lokun Kauphallarinnar og fyrir opnun næsta dag. Þá var verið að vinna eftir nýrri MiFID löggjöf sem hafði verið innleidd skömmu áður.
„Þetta endaði í þessari sekt sem mér finnst ekki vera í samræmi við brotin. Ég hef alltaf sagt það. [Sektin] var mjög há,“ sagði Birna.
„Ég er ekki að gera lítið úr ábyrgð minni í því og að þarna voru gerð mistök. Það voru gerð ýmis mistök. Það var enginn viðskiptavinur eða neinn annar sem varð fyrir skaða. En lögin voru ekki uppfyllt með algjörlega réttum hætti varðandi framkvæmdina.“
„Hápólitískt mál“
Aðspurð sagði Birna að bankinn hefði getað farið í dómsmál út af sektinni. Það ferli hefði þó tekið mjög langan tíma og hvorki hún né stjórn bankans hafi verið tilbúin í þá vegferð, þ.e. að standa í slíkum málaferlum við eftirlitsaðila sinn í mörg ár. Hún sagði þó ákveðna lögfræðinga hafa verið á þeirri skoðun að bankinn hefði átt að fara þá leið í ljósi fjárhæðarinnar.
Hún tók einnig undir með Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, sem sagði á sama vettvangi fyrir tveimur árum að Seðlabankinn hefði reitt mjög hátt til höggs í þessu máli.
„Þetta var líka hápólitískt mál,“ sagði Birna. „Það voru allir í erfiðri stöðu. Seðlabankinn var mjög opinn með það, þeir sögðust ætla að taka hart á þessu máli og þeir gerðu það svo sannarlega.“
Ríkisstjórnin náði saman um að láta bankastjórann fara
Birna rifjaði upp að umrætt útboð hafði verið krefjandi mál fyrir síðustu ríkisstjórn. Hún sagði stjórnarandstöðuna hafa séð þetta sem tækifæri til að ná sér niður á ríkisstjórninni og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra.
„Stjórnin var á erfiðum stað. Þau með voru tvö mál á þessum tíma sem þau voru mjög ósammála um – hvalveiðar og útlendingamál. Svo var þetta þriðja málið. Þau náðu að vera sammála um það að láta bankastjórann fara. Það var svona þeirra sameiginlega sýn á það. Þetta voru bara þeytivindar sem maður náði engum tökum á.“
Dóttirin fékk ókeypis MBA gráðu
Birna segir að vikan í aðdraganda starfsloka sinna hjá Íslandsbanka hafi verið mjög erfið og lokaspretturinn hafi verið dramatískur. Hún minnist þar sérstaklega á stjórnarfundinn þar sem hún ákvað að segja starfi sínu lausu en hann stóð yfir fram á nótt.
„Það var stjórnarfundur þar sem þetta var rætt fram og til baka. Ég sá svona í hvað stefndi, að þetta gæti nú farið svona,“ sagði Birna.
„Ég á dóttur sem var ein heima og ég sagði henni að koma upp í banka af því að mér fannst óþægilegt ef þetta færi að fara í fjölmiðla að hún væri ekki hjá mér. Hún kemur upp í banka – ég segi alltaf að hún hafi fengið MBA gráðu ókeypis þessa nótt. Hún sá að það getur verið kalt á toppnum, hún lærði það „the hard way“.“
Annað viðhorf í dag
Birna segir að atburðarásin í kjölfar framangreinds útboðs Bankasýslunnar muni ekki eldast vel. Hún telur að það geti vel verið að stjórnvöld kjósi aftur að notast við sölu með tilboðsfyrirkomulagi aftur því fyrirkomulagið geti hentað mjög vel við slíka eignasölu.
„Ég finn það bara strax að það er kannski aðeins öðruvísi viðhorf gagnvart því hvernig þetta fór.“
Hún kýs þó að reyna að horfa fram hjá þessum kafla þegar kemur að 15 ára ferli sínum sem bankastjóri Íslandsbanka sem hún telur að hafi verið mjög farsæll.
„Auðvitað voru þetta vonbrigði, að þessi ferill hafi endað með þessum hætti. Ég ætla ekkert að leyna því. En ég var búin að vera [bankastjóri] í 15 ár, var aðeins farin að velta þessu fyrir mér. Svo kemur þessi Kvika-Íslandsbanka sameining, mér langaði þá að klára hana. Auðvitað hefði alltaf komið eitthvað annað og maður náttúrulega aldrei hætt,“ sagði Birna.
„En það var þó þannig að ég hafði hugsað 15 ár, það væri svolítið glæsilegt að skoða þetta með haustinu.“
Birna ræðir um útboð Bankasýslunnar í mars 2022 og starfslok sín hjá bankanum frá 35:30-48:15.