Hafnartorgssvæðið stækkar umtalsvert í sumar en á næstu vikum opnar nýr áfangastaður með verslunum og veitingastöðum við gömlu höfnina í Reykjavík. Staðurinn hefur nú fengið nafnið Hafnartorg Gallery. þar verður að finna vandaðar verslanir. Þar verður að finna 11 nýja veitingastaðir og verslanir, sem bætast við þá 12 rekstaraðila sem þegar má finna í eldri hluta Hafnartorgs. „Áður en langt um líður er gert ráð fyrir að fjöldi rekstraraðila á svæðinu verði um 30 talsins,“ segir í tilkynningu Regins fasteignafélags.
Meðal þeirra sem nú undirbúa opnun í Hafnatorgi Gallery má nefna nýja verslun 66°Norður, fyrstu verslun North Face á Íslandi, nýja lífsstílsverslun Casa, nýjan 80 sæta „fine dining“ veitingastað með áherslu á nútímalegt fransk-íslenskt eldhús. Auk þess munu 7 smærri veitingastaðir opna með fjölbreytt úrval af mat og drykk.
Basalt Arkitektar eiga heiðurinn að innanhússhönnun Hafnartorgs Gallery. Markmið þeirra var að skapa opið fjölnota rými sem býr til frjóan jarðveg fyrir margs konar upplifun og lífsgæði.
„Þannig er ætlunin að Hafnartorg Gallery verði miðpunktur mannlífs í nýju borgarrými; staður til að versla, njóta matar og drykkjar, staldra við á milli erinda í miðborginni og upplifa menningu í tengslum við viðburði.“
Opnun Hafnartorgs Gallery er sögð marka tímamót í borginni því nú sé að ljúka rúmlega áratugs langri uppbyggingu á svæðinu milli Lækjartorgs og Hörpu þar sem ný íbúabyggð, atvinnustarfsemi, almenningsrými, verslun og þjónusta auk ráðstefnuhalds og menningarinnar í Hörpu bætast við miðborgina. Uppbyggingu á svæðinu lýkur síðar á þessu ári þegar framkvæmdum við nýtt hús Landsbankans lýkur.
Undir svæðinu liggur stærsti bílakjallari landsins en hægt er að koma upp úr honum á ýmsum stöðum á Hafnartorgi, þar á meðal upp um rúllustiga beint inn í Hafnartorg Gallery. Þá liggja hjóla- og gönguleiðir að svæðinu auk þess sem biðstöðvar strætó liggja við Hafnartorg auk Borgarlínu þegar fram líða stundir.


