Nýlokinn leiðangur loðnumælingaskipa á vegum Hafrannsóknastofnunar gefur tilefni til ráðgjafar um útgáfu 8.589 tonna aflaheimilda að því er segir í tilkynningu frá stofnuninni.

„Meira magn af loðnu mældist fyrir norðvestan land nú í febrúar en í janúar mælingum Hafrannsóknastofnunar. Það er meginástæðan fyrir uppfærðri ráðgjöf upp á 8589 tonn.“

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, ásamt uppsjávarveiðiskipunum Polar Ammassak og Heimaey hafa verið við loðnumælingar norður af Íslandi síðan 8. febrúar.

Ekkert var að sjá af fullorðinni loðnu á yfirferðasvæði veiðiskipanna tveggja meðan tæp 98.2 þúsund tonn mældust á Árna Friðrikssyni norðvestan við land, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Mynd tekin úr tilkynningu Hafrannsóknastofnun.

Í janúar mældust um 180 þúsund tonn austur af landinu og saman með febrúarmælingunni vestan til er heildarmæling vetrarins um 278.20 þúsund tonn. Til samanburðar þá var stærð veiðistofnsins metinn 318 þúsund tonn síðast liðið haust.

„Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar byggir á samþykktri aflareglu stjórnvalda þar sem haustmæling vegur 1/3 á móti 2/3 af niðurstöðu vetrarmælinga að teknu tilliti til óvissu í matinu og til metins afráns.“

Ferlarnir sýna leiðir loðnumælingaskipanna þriggja auk siglingaferil rannsóknarskipsins Bjarna Sæmundssonar (blá lína) sem var við sjómælingar.