Hafrannsóknastofnun ráðleggur 4 % lækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2025/2026. Því lækkar ráðlagður heildarafli úr 213 214 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 203 822 tonn.

„Gert er ráð fyrir að stærð viðmiðunarstofns þorsks dragist saman næstu tvö til þrjú ár. Ástæðuna má rekja til þess að árgangarnir frá 2021 og 2022 eru áfram metnir undir meðallagi. Þeir koma til með að ganga inn í viðmiðunarstofninn í ár og á næsta ári. Einnig eru árgangarnir frá 2019 til 2021 hægvaxta, sem talið er tengjast slöku ástandi loðnustofnsins,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar sem kynnti í dag úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár.

Samkvæmt nýuppfærðri aflareglu verður aflamark ýsu 78 918 tonn sem er 3 % hækkun á ráðgjöf frá yfirstandandi fiskveiðiári. Stofnunin segir stærð viðmiðunarstofns vera metin við sitt hæsta gildi.

Ráðgjöf fyrir ufsa samkvæmt uppfærðri aflareglu, lækkar um 11 % frá yfirstandandi fiskveiðiári og er 59 510 tonn.

Upphafsaflamark fyrir næstkomandi loðnuvertíð samkvæmt aflareglu strandríkja er 46 384 tonn. Þessi ráðgjöf verður uppfærð áður en veiðar hefjast að lokinni haustmælingu.

Ráðgjöf fyrir gullkarfa er 41 911 tonn eða 12 % lægri en á yfirstandandi fiskveiðiári. Áfram er lagt er til að aflamark djúpkarfa verði 0 tonn þar sem hrygningarstofninn er metinn undir varúðarmörkum. Ráðgjöf fyrir grálúðu hækkar um 17 % frá fyrra ári og er nú 20 992 tonn. Ráðgjöf um aflamark íslensku sumargotssíldarinnar fyrir komandi fiskveiðiár hækkar um 27 % og er 103 367 tonn.