PBT ehf., félag í eigu tónlistarmannsins Patriks Snæs Atlasonar sem einnig er þekktur undir listamannsnafninu Prettyboitjokko, hagnaðist um 3 milljónir króna á síðasta ári.

Rekstrartekjur námu 10 milljónum króna. Félagið var stofnað í lok ágúst á síðasta ári.

Patrik stofnaði svo í apríl á þessu ári félagið PBT Store ehf. en Patrik greindi frá því í viðtali við Viðskiptablaðið í fyrra að hann sæi mikil tækifæri í því að stækka Prettyboitjokko vörumerkið.

Lykiltölur / PBT ehf.

2023 2022
Tekjur 10 -
Eignir 9 -
Eigið fé 4 -
Afkoma 3 -
- í milljónum króna

Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.