Sjóböð ehf., félag sem rekur GeoSea sjóböðin á Húsavík, skilaði 7,4 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 57,4 milljóna hagnað árið 2021.

Tekjur Sjóbaðanna, sem opnuðu í september 2018, námu 257 milljónum króna og drógust saman um 7,4% á milli ára. Á sama tíma námu rekstrargjöld 212 milljónum króna og jukust um 18% á milli ára.

Í skýrslu stjórnar segir að rekstur félagsins hafi gengið vel á árunum 2021 og 2022 þrátt fyrir áhrif Covid-19 faraldursins á ferðaþjónustuna. Þá segir að bókunarstaða félagsins fyrir árið 2023 sé góð og er gert ráð fyrir vexti í starfseminni.

Fjárfestingarsjóðurinn Norðurböð er stærsti hluthafi félagsins með 34,7% hlut. Útgerðarmaðurinn Pétur Stefánsson er næst stærsti hluthafi Sjóbaðanna með 29% hlut. Þá eiga Jarðböðin á Mývatni 22% hlut í Sjóböðunum og Orkuveita Húsavíkur ohf. 13,8% hlut.