Hagar, móðurfélag Bónus, Hagkaups og Olís, högnuðust um 1.165 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi rekstrarárs félagsins sem lauk 31. maí síðastliðinn. Til samanburðar hagnaðist félagið um 850 milljónir á sama tímabili ári áður og jókst hagnaðurinn því um 37% milli ára.
Hagar rekja bætta afkomu einkum til áhrifa af rekstri færeyska félagsins SMS, sem Hagar keyptu í lok síðasta ár, auk þess sem afkoma stærstu rekstrareininga styrkist milli ára, að því er segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.
Velta Haga jókst um 9,2% milli ára og nam 48,1 milljarði króna, en þess ber þó að geta að SMS varð hluti af samstæðu Haga á fjórða ársfjórðungi 2024/2025 og gætir áhrifa þeirra því ekki í samanburðartölum fyrra árs. Framlegðarhlutfall Haga á fyrsta fjórðungi jókst úr 21,6% í 24,1% milli ára.
Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 4.046 milljónum króna á fjórðungnum eða 8,4% af veltu. Til samanburðar var EBITDA-hagnaður Haga 3.214 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.
„Það er ánægjulegt hvað starfsemi Haga fer vel af stað á árinu, nú með liðsinni frá nýjum samstarfsfélögum og frábærum viðskiptavinum í Færeyjum,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.
Hann segir meðbyr í rekstri verslana og vöruhúsa á Íslandi, þar sem tekjur voru 33,6 milljarðar króna, jukust um 7% og afkoma styrktist. Seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir fjölgaði, bæði í Bónus og Hagkaup.
Hagnaður á hlut aukist um 191% frá stefnumótun
Í fjárfestakynningu Haga er vakin athygli á því að hagnaður á hlut hjá félaginu hafi aukist um 191% frá stefnumótun félagsins haustið 2020, skömmu í kjölfar þess að Finnur Oddsson var ráðinn forstjóri félagsins.
Finnur ræddi um árangur í rekstri Haga yfir þetta tímabil í ítarlegu viðtali við Viðskiptablaðið í tilefni af SMS kaupunum í lok síðasta árs.
Hagnaður á hlut hjá Högum nemur 5,84 krónum fyrir síðustu 12 mánuði, en 6,75 kr. á hlut ef einskiptisáhrif vegna gangvirðisbreytinga í Færeyjum eru tekin með. Án áhrifa einskiptis gangvirðisbreytinga í Færeyjum eftir SMS kaupin jókst hagnaður á hlut um rúm 22% frá sama tíma í fyrra.
„Bætt afkoma síðustu missera byggir sem fyrr á almennum rekstrarbata, stefnumarkandi ákvörðunum, nýjum einingum og auknum umsvifum,“ segir í fjárfestakynningunni.
