Hagnaður Arion banka nam um 10 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt drögum bankans að uppgjöri. Samkvæmt því var arðsemi eiginfjár hjá Arion 19% á fjórðungnum.

Afkoma fjórðungsins er um 45% yfir meðaltalsspá greiningaraðila, að því er segir í tilkynningu Arion til Kauphallarinnar.

„Munurinn liggur helst í hærri hreinum vaxtatekjum og virðisbreytingum af fjárfestingareignum, lægri rekstrarkostnaði samstæðunnar og jákvæðari virðisbreytingu lánabókar en greiningaraðilar gera almennt ráð fyrir.“

Fram kemur að tekjur af kjarnastarfsemi, samanlagðar hreinar vaxtatekjur, hreinar þóknanatekjur og hreinar tekjur af tryggingastarfsemi, séu um 10% hærri en spár greiningaraðila.

Áréttað er að uppgjörið fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2025 sé enn í vinnslu og kann því að taka breytingum fram að birtingardegi þann 30. júlí.