Rekstrarfélag Domino’s á Íslandi, Pizza-Pizza ehf., hagnaðist um 230 milljónir króna eftir skatta á árinu 2024, samanborið við 173 milljónir króna árið 2023. Það samsvarar 33,6% aukningu milli ára.

Stjórn félagsins mun leggja til arðgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir króna til móðurfélagsins PPH ehf. fyrir aðalfund, að því er segir í nýbirtum ársreikningi félagsins.

Félagið segir að reksturinn á síðasta ári hafi gengið að mestu í samræmi við væntingar. Rekstrartekjur námu 6.719 milljónum króna og jókst um 2,3%.

Rekstrargjöld jukust um 1,2% og námu 6.440 milljónum króna. Þar af voru laun og tengd gjöld 2.777 milljónir króna. Ársverk voru 238 samanborið við 242 árið áður.

Eignir Pizza-Pizza ehf. námu 1,3 milljörðum króna í árslok 2024 og eigið fé var um 635 milljónir króna.

Lykiltölur / Pizza-Pizza ehf.

2024 2023
Rekstrartekjur 6.719 6.566
EBIT 279 204
Afkoma 231 173
Eignir 1.336 1.330
Eigið fé 636 705
Ársverk 238 242
- í milljónum króna

PPH, sem Birgir hefur farið fyrir, keypti rekstur Domino‘s árið 2021 af Domino’s Pizza Group plc í Bretlandi fyrir 2,4 milljarða króna.

Kristinn, félag í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, er stærsti hluthafi PPH með tæplega 35% hlut. Eyja fjárfestingarfélag VI, í eigu hjónanna Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, á 25,7% hlut. Sjávarsýn, félag Bjarna Ármannssonar á einnig 25,7% hlut, og Lýsi hf. á 12,9% hlut.

Hluthafar PPH

Eignarhlutur
Kristinn ehf. 34,74%
Sjávarsýn ehf. 25,74%
Eyja fjárfestingarfélag VI 25,65%
Lýsi hf. 12,87%
Jónsson & Harðarson ehf. 1,00%
Samkvæmt ársreikningi PPH fyrir 2023