Landsvirkjun hagnaðist um 70,5 milljónir dollara, eða um 9,7 milljarða króna, á fyrstu sex mánuðum ársins, sem samsvarar 38% lækkun frá sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur Landsvirkjunar drógust saman um 15,9% og námu 279 milljónum dollara eða um 38,6 milljörðum króna á tímabilinu.
„Erfið staða í vatnsbúskap fyrirtækisins og skerðingar sökum hennar settu nokkurn svip á afkomuna á fyrri hluta ársins,“ segir í afkomutilkynningu Landsvirkjunar.
Fram kemur að hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrri árshelmingi var 143,4 milljónir dollara, eða 19,9 milljarðar króna, og dróst saman um 27%.
„Rekstur Landsvirkjunar á öðrum ársfjórðungi gekk vel við nokkuð krefjandi aðstæður. Eftir tvö einstök rekstrarár í sögu fyrirtækisins er afkoman áfram góð,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
„Þröng staða í vatnsbúskapnum setti mark sitt á reksturinn á fyrri hluta ársins. Tekjur af raforkusölu drógust saman vegna skerðingar á afhendingu rafmagns af þeim sökum, auk þess sem verðtenging við Nordpool-markaðinn í samningi við einn stórnotanda féll niður í lok síðasta árs. Þá lækkuðu innleystar áhættuvarnir frá fyrra ári, sem hafði áhrif til tekjulækkunar.“
Eignir Landsvirkjunar voru bókfærðar á 3.561 milljón dollara eða um 495 milljarðar króna í lok júní. Eigið fé félagsins nam 2,2 milljörðum dollara eða um 308 milljörðum króna.
Eiginfjárhlutfall Landsvirkjunar var 62,2% og skuldsetning 1,44× rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.