Ölgerðin skilaði 379 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi reikningsársins sem lauk 31. maí síðastliðinn. Hagnaður félagsins dróst saman um 21% frá sama tímabili í fyrra þegar það hagnaðist um 482 milljónir.

Útgefin afkomuspá fjárhagsársins stendur óbreytt um að EBITDA-ársins verði á bilinu 4,8-5,2 milljarðar króna.

Vörusala og framlegð hækkuðu um 3% milli ára. EBITDA-afkoma samstæðunnar dróst saman um 8% milli ára og nam 970 milljónum króna á fjórðungnum.

Tollar hafa áhrif Iceland Spring

Í uppgjörstilkynningu félagsins kemur fram að rekstur vatnsútflutningsfyrirtækisins Iceland Spring, sem Ölgerðin á 51% hlut í, hafi verið undir áætlunum stjórnenda en EBITDA-hagnaður þess dróst saman um 52 milljónir króna á tímabilinu.

Ölgerðin rekur lakari afkomu Iceland Spring annars vegar til áhrifa innflutningstolla sem setja mark sitt á eftirspurn í Bandaríkjunum, auk þess sem gengi dalsins gagnvart íslensku krónunni muni hafa áhrif á rekstraruppgjör í íslenskum krónum.

Collab komið í hundruð verslana í Danmörku og Þýskalandi

EBITDA áhrif af Collab útflutningi voru neikvæð um 120 milljónir króna samkvæmt áætlun á tímabilinu.

Ölgerðin segir CLABE útflutning gagna samkvæmt áætlun. Í Danmörku sé varan seld í um 600 verslunum og í Þýskalandi, þar sem sala hófst í byrjun júní, sé varan nú seld í um 700 verslunum í norðurhluta Þýskalands. Áætlað er að í haust verði Collab fáanlegt í um 1.500 verslunum í Þýskalandi.

„Of snemmt er að segja til um söluhorfur en fyrstu viðtökur eru góðar.“

Kaup á Gæðabakstri og Kjarnavörum áfram á dagskrá

Ölgerðin tilkynnti í janúar síðastliðnum um samkomulag um kaup á öllu hlutafé Gæðabaksturs í tæplega 3,5 milljarða króna viðskiptum. Félagið tilkynnti einnig í lok febrúar um samkomulag um kaup á öllu hlutafé Kjarnavara, sem er metið á 4 milljarða króna í viðskiptunum.

Í uppgjörstilkynningunni segir Ölgerðin af samþykktarferlið hafi tekið lengri tíma en væntingar stóðu til.

Kaup félagsins á Gæðabakstri bíði nú samþykktar Samkeppniseftirlitsins og áreiðanleikakönnun á Kjarnavörum standi enn yfir.

„Ekkert hefur komið fram í áreiðanleikakönnunum sem hefur áhrif á viðskiptin.“