Hagnaður Samvinnufélags útgerðarmanna Neskaupstaðar (SÚN) nam 108 milljónum króna á síðasta ári og námu eignir félagsins rúmlega 20 milljörðum króna. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Neskaupstað í lok maí.
Í tilkynningu segir að hagnaðurinn hafi verið minni en undanfarin ár og að það skýrist vegna mikilla framkvæmda og styrkja til samfélagsins.
Guðmundur Rafnkell Gíslason, framkvæmdastjóri SÚN, sagði á aðalfundi að samfélagsstyrkir félagsins hafi numið 300 milljónum króna á síðasta ári. Meðal annars runnu 241 milljón króna til knattspyrnuvallarins í Neskaupstað, sem nú heitir SÚN-völlurinn.
Völlurinn hafði verið breikkaður og fékk einnig nýtt gervigras ásamt lýsingu og vökvunarkerfi. Stúka vallarins er þá væntanleg í þessum mánuði.
„Aðrir styrkir voru rúmlega 35 milljónir og þar af voru styrkir til knattspyrnunnar í Fjarðabyggð og íþróttafélaga um 24 milljónir. Úr Menningar- og styrktarsjóði félagsins var svo úthlutað 19 milljónum,“ segir í tilkynningu.