Sjávarútvegsfyrirtækið Dögun, sem rekur rækjuvinnslu á Sauðárkróki, hagnaðist um þrjár milljónir evra á árinu 2023, sem nemur 453 milljónum króna miðað við meðalgengi evrunnar á árinu.

Til samanburðar nam hagnaðurinn 2,8 milljónum evra árið áður, um 418 milljónum króna. Þá námu rekstrartekjur félagsins 29,4 milljónum evra á síðasta ári, sem nemur 4,4 milljörðum króna.

Fyrirtækið fagnaði sínu fertugasta starfsári í fyrra og er í meirihlutaeigu Óttars Magnúsar Yngvasonar. Óskar Garðarsson er framkvæmdastjóri Dögunar.

Dögun ehf

2023 2022
Rekstrartekjur 4.386 4.230
Eignir 6.591 5.997
Eigið fé 3.438 3.001
Hagnaður 453 393
Lykiltölur í milljónum króna.