Fjármálaráðuneytið áætlar að það kosti 18 milljónir króna árlega að koma á fót stöðugildi hagsmunafulltrúa aldraðra, samkvæmt nýju frumvarpi til fjáraukalaga.

„Sérstökum hagsmunafulltrúa eldra fólks verður falið að standa vörð um réttindi þess. Ráðinn verður inn starfsmaður til félags- og húsnæðismálaráðuneytis til að taka að sér verkefnið og taka þátt í að móta hlutverk hagsmunafulltrúans,“ segir í greinargerð frumvarpsins.

Inga Sæland tilkynnti á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í febrúar síðastliðnum að til stæði að koma á stöðu embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks, sem hefði m.a. það hlutverk að leiða vinnu við að kortleggja félagslega stöðu og réttindi eldra fólks.