Leiðandi hagvísir Analytica lækkaði í janúar. Þá voru gildi fyrir síðustu mánuði endurskoðuð niður á við. Miðað við endurskoðuð gildi þá hefur hagvísirinn lækkað 6 mánuði í röð.
„Horfur virðast á hagvexti í takt við langtímaleitni á fyrri árshelmingi 2023 en eftir það sé hætta á minni vexti eða samdrætti landsframleiðslu. Vísbendingar um þetta virðast að styrkjast,“ segir í frétt á vefsíðu Analytica.
Fjórir af sex undirliðum hagvísisins lækkuðu á milli mánaða en stærsta framlag til lækkunar er vegna framvindu í ferðaþjónustu og samdráttar í aflamagni. Þá er einnig umtalsverð óvissa áfram vegna stríðsins í Úkraínu.
„Framvindan á fjármálamarkaði er áfram meðal óvissuþátta vegna verðbólgu og aðgerða ýmissa seðlabanka í þá veru að minnka peningalega þenslu.“

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum að sex mánuðum liðnum. Vísitalan á þannig að veita sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.