Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í dag endanlegt mat á landsframleiðslu á evrusvæðinu á fjórða ársfjórðungi 2024. Hagvöxtur reyndist 0,2% á tímabilinu en bráðabirgðatölur sem birtar voru í febrúar gerðu ráð fyrir 0,1% hagvexti.
Alls eru 20 lönd á evrusvæðinu en nýjar upplýsingar frá Írlandi og Ítalíu leiddu til þess að hagvöxtur á svæðinu í heild jókst.
Að því er kemur fram í frétt Wall Street Journal hafa yfirvöld í Írlandi gefið það út að hagvöxtur hafi verið 3,6% á fjórða ársfjórðungi en fyrra mat gerði ráð fyrir samdrætti. Fjöldi bandarískra fjölþjóðafyrirtækja eru með evrópskar höfuðstöðvar sínar í Írlandi og því geta tölur um landsframleiðslu sveiflast talsvert eða leitt til endurskoðunar.
Þá reyndist hagkerfi Ítalíu, sem er meðal þeirra stærstu á evrusvæðinu, hafa vaxið um 0,1% en áætlanir gerðu áður ráð fyrir samdrætti.
Greint var frá því í gær að Seðlabanki Evrópu hefði fært niður hagvaxtarhorfur á evrusvæðinu. Nú er gert ráð fyrir 0,9% hagvexti árið 2025, 1,2% árið 2026 og 1,3% árið 2027. Niðurfærslan var sögð endurspegla væntingar um minni útflutning og áframhaldandi veikleika þegar kemur að fjárfestingum.
Þá sé talsverð óvissa til staðar vegna tollaáforma Donalds Trump Bandaríkjaforseta en hann hefur hótað að leggja 25% toll á vörur frá Evrópusambandinu.