Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5%. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem nefndin birti í morgun.

„Álagspróf Seðlabanka Íslands á kerfislega mikilvæga banka gefa til kynna að þeir gætu staðist umtalsvert álag,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Hún bætir þó við að ekki hafi dregið úr áhættu í fjármálakerfinu og telur nefndin því mikilvægt að fjármálafyrirtæki búi við sterka eiginfjárstöðu.

Nefndin segir fjármálakerfið hér á landi standa traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk, aðgengi að fjármögnun gott og fjármögnunarkostnaður erlendis hafi lækkað.

Þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa gæti hins vegar skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið.

Fáar vísbendingar um greiðsluvanda heimila og fyrirtækja

Fjármálastöðguleikanefnd segir fáar vísbendingar vera um almennan greiðsluvanda heimila og fyrirtækja þrátt fyrir að mikil verðbólga og háir vextir reynist mörgum áskorun. Nefndin segir einnig að sterk eiginfjárstaða margra lántakenda veiti svigrúm til endurskipulagningar útlána ef þörf krefur.

„Takmarkanir á skuldsetningu við fasteignakaup, launahækkanir og hátt atvinnustig eiga ríkan þátt í viðnámsþrótti heimila. Sókn heimila og fyrirtækja í verðtryggð lán á kostnað óverðtryggðra hefur leitt til þess að verðtryggingarójöfnuður bankanna hefur vaxið, enda stærstur hluti fjármögnunar þeirra óverðtryggður. Þetta gæti reynst áskorun fyrir fjármálakerfið.“

Nefndin segir fasteignaverð hátt og afleiðingar eldsumbrotanna á Reykjanesi og fólksflutningar til landsins hafi m.a. átt þátt í hækkun þess undanfarin misseri.

Umsvif í byggingariðnaði séu enn nokkuð kröftug „líkt og skýr merki eru um af vinnumarkaði og í vexti útlána til byggingageirans“.

Beita sér fyrir aðgerðum til að draga úr rekstraráhættu í greiðslumiðlun

Í yfirlýsingunni undirstrikar nefndin einnig mikilvægi þess að unnið sé að auknu rekstraröryggi í greiðslumiðlun „og mun beita sér fyrir aðgerðum sem miða að því að draga úr undirliggjandi rekstraráhættu“.

„Nokkuð hefur þegar áunnist en nefndin telur mikilvægt að lokið verði við samhæfingaráætlun fyrir fjármálamarkaði um snemmbær, samhæfð og skilvirk viðbrögð við rekstraratvikum.“