Golfskálinn, eitt þekktasta fyrirtæki landsins á sviði golfferða og golfbúnaðar, hefur nú gengið í hendur nýrra eigenda. Það er Stamina leitarsjóður sem stendur að kaupunum en sjóðurinn var stofnaður af Kára Steini Karlssyni með það að markmiði að finna öflugt rekstrarfélag og leiða það áfram í gegnum vöxt og umbreytingu. Eignarhald félagsins er nú í höndum Kára Steins og hóps fjárfesta í gegnum Stamina en Kári tekur jafnframt við sem framkvæmdastjóri.

Seljendur eru stofnendur Golfskálans, Ingibergur Jóhannsson og Hans Henttinen. Ingibergur hefur leitt ferðaþjónustuhluta starfseminnar á meðan Hans hefur séð um rekstur verslunar og daglega stjórn fyrirtækisins. Hans verður nýjum eigendum innan handar næstu vikurnar og Ingibergur verður þeim innan handar út árið og hugsanlega lengur.

Að baki Stamina leitarsjóði er öflug stjórn og hluthafar með víðtæka reynslu úr viðskiptalífi og fjárfestingum – en einnig margir hverjir með djúpar rætur í golfheiminum. Stjórn og hluthafar sameina þannig bæði faglega innsýn og ástríðu fyrir íþróttinni. Nýr stjórnarformaður Golfskálans verður Gunnar Sigurðsson, sem hefur víðtæka reynslu úr íslensku viðskiptalífi, m.a. frá Baugi og Kviku banka, og var sjálfur keppnismaður í golfi á yngri árum.

Kári segir að Golfskálinn muni áfram bjóða upp á vinsælar golfferðir til Spánar skipaðar reyndum fararstjórum og golfkennurum. Ferðirnar séu skipulagðar með áherslu á gæði, afslöppun og samveru – fyrir kylfinga á öllum getustigum. Verslunin bjóði upp á breitt úrval af vönduðum vörum á samkeppnishæfu verði, sérfræðiráðgjöf og sveiflugreiningar fyrir þá sem vilja bæta leik sinn. Golfskálinn leggi áherslu á persónulega þjónustu og hafi fest sig í sessi sem traustur samstarfsaðili íslenskra kylfinga.

Veltu 1,1 milljarði

Helgi Einar Nonni ehf., félagið utan um rekstur Golfskálans sem Stamina leitarsjóður hefur fest kaup á, velti nærri 1,1 milljarði króna árið 2023. Velta félagsins jókst um fimmtung frá fyrra ári. Hagnaður ársins 2023 nam 142 milljónum árið 2023 og jókst um 32 milljónir frá fyrra ári, eða um 29%. Eignir félagsins námu 483 milljónum í lok árs 2023 og eigið fé 328 milljónum.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.